Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 55
53
torsio getur neðri hluti tibiunnar verið
snúinn inn á við (internal tibial torsio) eða
út á við (external tibial torsio). Sé slík
torsio til staðar liggja þverásar proximal
tibial liðflatar og distal tibial liðflatar ekki
lengur í sama fleti. í femoral torsio má
líta á neðri hluta leggjarins eða condylar-
hlutann sem fasta hlutann, en ímynda sér
að proximali hlutinn snúist um langöxul-
inn. Maður fær í þessum tilfellum ante-
torsio eða ante-versio á lærleggshálsi ef
proximali hluti lærleggs snýst út á við
og retro-torsio eða retro-versio á lærleggs-
hálsi ef proximali hluti lærleggs snýst inn
á við.
Mjög víðtækar rannsóknir hafa farið
fram á vexti í epiphysulínum. M.a. hefur
verið sýnt fram á að þrýstingur eða com-
pressio samsíða langöxli leggjabeina dreg-
ur úr eða stöðvar lengdarvöxt, en þrýst-
ingsminnkun eða tog örvar lengdarvöxt.
Sömuleiðis hefur verið sýnt fram á að
þrýstingur hornrétt á langöxul leggjabeina
eða hornrétt á vaxtarstefnu í epiphysulín-
um veldur hliðarsveigju í lengdarvextin-
um samfara torsio. M.a. hefur verið sýnt
fram á í dýratilraunum að séu mjaðmar-
liðir gipsaðir í þvingaðri útrotatio veldur
það með tímanum retro-versio á lærleges-
hálsi, en sé hins vegar gipsað í Lange stöðu
eða þvingaðri innrotation veldur það ante-
versio á lærleggshálsi.
Orsakir torsions-skekkja í ganglimum
eru eflaust margar og að nokkru ókunnar.
Þó hefur verið bent á nokkur atriði. Bent
hefur verið á stöðu ganglima í fósturlífi,
þar sem ganglimurinn vex fyrst út lateralt
í abduceraðri og útroteraðri stöðu, en þró-
ast síðan í fósturlífi og roterast. Er af mörg-
um talið að torsio í ganglimum sé sumpart
orsökuð af stöðnun á þessari þróun í fóst-
urlífi, enda sé slík torsio oft til staðar i ný-
fæddum börnum og réttist ekki til fulls
fyrr en eftir fæðinau.
Að einhverju leyti er einnig um erfða-
þátt að ræða þar sem ereint hefur verið
frá torsions tilfellum í fiölskvldum iafnvel
í nokkrum ætthðum. Hefur verið sýnt fram
á sterkan erfðaþátt, sem virðist vera af
autosomal dominant tegund.
í þriðja lagi hefur verið bent á rotations
kreppur (contracturur) og torsions skekkj-
yr, sem orsakist af óeðlilegum stellingum
eftir fæðingu. Hefur þar verið bent á svefn-
venjur, sömuleiðis hvernig börn sitja og
annað eftir því. Það virðist þó nokkuð ljóst
að óeðlilegar stellingar geti ekki valdið
torsions skekkjum í ganglimum hjá eðli-
legum börnum. Eðlileg börn hreyfa sig
það mikið og skipta það mikið um stelling-
ar að slíkt kæmi ekki til. Hins vegar er
talið að torsions skekkjur geti komið fram
hjá sjúklingum með taugasjúkdóma, t.d.
sjúklingum, sem ekki geta gengið eða stað-
ið og eru viðvarandi í einhverri ákveðinni
stellingu.
FEMORAL TORSIO
Óeðlileg anteversio á lærleggshálsi er
töluvert algeng og veldur snúnings-skekkju
í ganglimum þannig að börnin eru áberandi
innskeif í gangi. Þetta er u.þ.b. 2svar sinn-
um algengara hjá stúlkum en drengjum.
Mynd 6. — Tvær algengar stellingar hjá
börnum, er ekki geta staðið eða gengið. Sú
efri leiðir til aukinnar anteversio á lær-
Icggshálsum, en sú neðri til aukinnar retro-
versio.