Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Blaðsíða 9

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21 9 I13 -MEÐFERÐ VID SKJÖLDUNGSÖRVA 75 SJÚKLINGA 1985-1991 Sigurður Þ. Guðmundsson, sérfragðingur Lyflaekningadeild Iandspitalans Geislameðferð með I131 ísótóp á æ meira fylgi að fagna sem kjörmeðferð við skjaldkirtilsof- starfsemi. Meðferðin hefur hérlendis einvörð- ungu verið gefin á ísótópadeild Landspítalans og verið stjórnað frá upphafi, 1962, af próf. Davíð Davíðssyni og samstarfsmönnum. Sl. 1-2 ár hefur Matthías Kjeld læknir verið aðalráð- gjafi um ákvörðun skarmrtastyrks og endurtek- innar geislunar, hafi áhrif af fyrstu meðferð ekki reynst næg. Nýlega gerði starfslið ísótópadeildar yfirlits- köqnun um fjölda sjúklinga, sem fengið hafa I - meðferð 1985-91. Reyndust 291 hafa hlotið meðferð, sumir oftar en einu sinni. Meiri hluta sjúklinganna var vísað til ísótóp- adeildar af innkirtlasérfræðingum, þar af 75 af höfundi. Téðir sérfræðingar fengu tilmæli frá deildinni að gefa upplýsingar um afdrif sinna umbjóðenda. 1 samskiptum innkirtlafreeð- inga og ísótópadeildar hefur annað veifið bryddað á óvissu, hvort eins vel væri staðið að meðferðinni og kostur væri og á það bent, að geislaskanrntar væru í knappara lagi á stundum og tregða úr hófi að endurtaka meðferð Áðurnefnd könnun gaf gott tækifæri að meta hversu til hefði tekist með sjúklingana sem tengdust höfundi,en fyrirfram þótti líklegt að eftirlit með þeim hefði verið viðunandi. Eftirfarandi kom í ljós. 37 sjúklingar voru af Reykjavíkursvæðinu en 38 víðsvegar af landinu. 65 voru konur og kynjahlutfallið því 6,5/1 konum í vil. íteðalaldur 47,7 ár og aldursdreif- ing frá 23-77 ára. Geislajoðmeðferð sem frum- lækningatilraun var gefin 50 sj. 21 sj. hafði fengið sértæk hömlulyf gegn upptöku joös í skjöldungsvef og 4 sj. höfðu auk lyfjameðferð- ar gengistjijYndir hlutarbrottnám skjaldkirtils áður en I var beitt. 65 sj.höfðu Graves sjúkdóm, en 10 höfðu ofvirkan hnút í skjöldungi. Fullur árangur geislajoðmeðferðar felst í því að skjöldungsörvinn er slökktur innan 3ja mán- aða. Til lengri tíma er höfuðmarkmiðið að bregðast hratt og rétt við skjöldungsbilun,en það eru örlög allra sem skjöldungsgeislun fá, ef nógu lengi er lifað. 26 sjúklinganna fengu viðvarandi skjöldungsörva í 3-18 mánuði. Skjöldungsbilun er þegar stað- fest í 43 skipti og ævarandi thýroxín meðferð hafin. 27 sj. hafa réttvirkan skjöldung. Upp- lýsingar skortir í 4 tilvikum og 1 sj. er lát- inn. Meðalskanrrrtur geislajoðs á tímabilinu var 6.6 mCi, dreifing meðal allra sj. 2.1-14 mCi,en milli ára var dreifing meðalskamnta 5.80-7.18 mCi. - Af framansögðu má telja að þokkalega hafi til tekist og hlutur ísótópadeildar mun betri en ætlað var. Tíðni viðvarandi skjöld- ungsörva er þó of há, en við því iraetti sporna með því að umsjárlæknir sjúklings meti skjöld- ungshag til fullnustu 3 mánuðum eftir geislun. Reynist örvi viðvarandi, á ísótópadeild að fá tilmæli um nýja meðferð með meiri geislamætti. Skjaldkirtilsrannsóknir á sjúklingum utan spítala. Hans Jakob Beck, Ari Jóhannesson, Matthías Kjeld. Ranns.stofan í Domus Medica, Rannsókn 6, Ranns.stofa Landspítalans, Lyflækn.deild Sjúkrah. Akraness. Tiltölulega hátt algengi skjaldkirtilssjúkdóma og oft óljós einkenni þeirra hafa kallað á tiltölulega mikla notkun skjaldkirtilsprófa. Ný og næmari próf breyta notkunarmunstri lækna í sífellu. Til að kanna hvernig þessu háttar hérlendis núna, höfum við kannað 7674 skjaldkirtilspróf, sem gerð voru á þriggja og hálfs árs tímabili á árunum 1987-1990 á almennri rannsóknarstofu fyrir lækna í læknisþjónustu utan sjúkrahúsanna. Sjúklingar komu frá 31 heimilislækni, 4 innkirtlalæknum, 20 lyflæknum og 22 öðrum sérfræðingum. Innkirtlalæknarnir báðu um skjaldkirtilspróf á 75% beiðna sinna, heimilislæknar og sérfræðingar á 10%, og aðrir sérfræðingar á 17% beiðna. Mikill mismunur var á milli einstakra lækna. Um 40% prófa frá innkirtlafræðingum voru jákvæð(utan viðm.- marka) en um 20% frá hinum. Færri en15% sjúklinganna var visað aftur til skjaldkirtilsmælinga nema hjá innkirtlalæknum, sem vísuðu 26% sjúklinga sinna oftar en einu sinni til mælinga. Algengasta samsetning á beiðnum var TSH+T3+T4, sérstaklega frá heimilislæknum (56%), en breytileiki var mikill. Lyflæknar og innkirtlalæknar báðu um TSH eingöngu(24%) oftar en hinir(14%) og "aðrir sérfræðingar" báðu oftar en aðrir um öll prófin samtímis (31%). Niðurstöður benda til þess að leit að skjaldkirtilssjúkdómum sé aðallega í höndum heimilislækna og ýmissa lyflækna, og að skjalkirtilsprófin mætti ef tii vill nota með betri árangri ef upplýsingar um þau væru aðgengilegri. Kostnaður kann og að ráða nokkru um val, en nýrri próf (2. kynslóðar TSH og FT4) er nokkuð dýrara en t.d. T4 og T$.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.