Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21
29
TK>NI NOKKURRA SJÚKDÓMA &
HREYF1SKERÐINGAR MEÐAL ALDRAÐRA
OG TENGSL ÞEIRRA VK> HOLDAFAR
Eyvindur Kjelsvik. Nikúlás Sigfússon, Arsœll Jónsson
LyflœknisdeiUl Borgarspítalans íReykjavík.
Bæði inegurð og offita tengjast aukinni dánar- og
sjúkdóraatíðni. Body Mass Index (BMI: þyngd [kg]/
hæð [m]2) er mælikvarði á fitumagni líkamans.
I rannsókninni tóku þátt 210 (af 215) sjúklingar
og vistfólk á öldrunardeildum Borgarspítalans, Hvíta-
hand, Seljahlíð, Droplaugastöðum og Heilsuverndar-
stöð. Skráð voru sérstaklega glöp, sykursýki,
langvinn berkjuhólga, kransæðasjúkdómur og hreyfi-
skerðing. Vægi sjúkdómanna var flokkað í þrennt:
I enginn, II vægur og III mikill. Upplýsingar voru
fengnir við skoðun sjúklinga, frá hjúkrunar-
fræðingum og úr sjúkraskrám. Niðurstöður eru
sýndar í töflu 1 .
Hreyfihamlaðir og sjúklingar með alvarleg glöp eru
marktækt léttari en viðmiðunarhópurinn og sjúk-
lingar með væg glöp eru marktækt eldri. Sjúklingar
með bæði mikil glöp og mikla hreyfiskerðingu eru
lang léttastir. Sjá töflu 2.
Sjúklingar með sykursýki, kransæðasjúkdóm og
COLD reyndust ekki frábrugðið heildarhópnum.
TENGSL BERKLAPRÓFA OG LIFUNAR
Á STOFNUNUM FYRIR ALDRAÐA.
Helga Hansdóttir, Hlynur Þorsteinsson,
Þorsteinn Blöndal, Ársæll Jónsson.
Lyflæknisdeild, Borgarspítali, Reykjavík.
Árið 1987 var gert berklapróf á öldruðu
fólki sem dvaldi á öldrunardeildum og
vist- og hjúkrunarheimilum tengdum
lyflæknisdeild Borgarspítalans. Alls voru
prófaðir 215 manns, 46 karlar
(meðalaldur 84.2 ár) og 169 konur
(meðalaldur 84.1 ár).
Framkvæmt var staðlað 5-TU Mantuox
próf (PPD RT-23) og húðsvörun talin
jákvæð ef húðþroti mældist 8 mm eða
stærri innan 72 klst.
Tíðni jákvæðra prófa reyndist um 30%
óháð hjúkrunarþyngd og útkomu á
skilvitunarprófum. Jákvæð berklasaga
fékkst fram hjá 61 einstaklingi og reyndist
tíðni jákvæðra berklaprófa meðal þeirra
vera 38% en 43% meðal 29 einstaklinga
7a/7a 1. Sjúhdómar áf stigun
Fjöldi sjúklinga (%)
Sjúkdómur Enginn Vægur Mikill
Glöp 94 (45) 34 (16) 82 (39)
Sykusýki 199 (95) 9(4) 2(2)
COLD 179 (85) 22 (10) 9(4)
Kransæðasjd. 139 (66) 60 (29) 11 (5)
Hreyfihömlun 60 (29) 71 (34) 79 (38)
Tafla 2. Sjúhdómar & holdafar
— meðalgildi úrvöldum hópum
Sjúkdómur Fjöldi Aldur BMIas WHR
Enginn sjúkdómur 14 83,9 24,2 0,88
Væg glöp 34 88,6* 21,9 0,89
Mikil glöp 82 86,5 21,8* 0,87
Mikil hreyfiskerðing 78 86,3 21,4* 0,88
Mikil glöp og hreyfiskerðing 38 86,9 20,0* 0,87
Allir 210 86,1 22,9 0,88
* p < 0,05
með allt að 30 ára sögu um jákvætt
húðpróf.
í desember árið 1990 höfðu 118
einstaklingar (55%) látist. Borin var saman
lifun aldraða fólksins við svörun á
berklaprófi þrem árum áður og einnig við
það hvort eldra berklapróf hefði haldist.
Niðurstöður eru sýndar á töflum I og II;
Tafla I
1987 1990
húðsvar lifandi látnir samtals
jákvætt 30 33 63
ncikvætt 67 85 152 p > 0,05
Tafla II
tapaö svar 10 6 16
haldið svar 9 4 13 p > 0,05
Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru að
hvorki útkoma á berklaprófi né tap á
fyrra húðsvari tengist lifun aldraðs fólks á
stofnunum fyrir aldraða.