Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Page 54
54
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21
BANDVEFSMYNDANDI LUNGNABÓLGA
MEÐ BERKJUNGATEPPU (Bronchiolitis
Obliterans Organizing Pneumonia - BOOP).
Klínísk sérkenni 19 sjúklinga á íslandi.
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, Steinn Jónsson.
Bjarni Agnar Agnarsson, Tryggvi
Ásmundsson.
Lyflæknisdeildir Landakotsspítala og Land-
spítala. Rannsóknastofa Háskólans í
meinafræði.
BOOP er fremur sjaldgæfur bandvefsmyndandi
bólgusjúkdómur í lungum og margt bendir til að
um sé að ræða ósérhæft vefjasvar við ýmis-
konar skaða í lungum. Við athuguðum sjúkra-
skýrslur nítján sjúklinga með BOOP, sem
greindust á árunum 1983-1991 (tíu karlar/níu
konur, meðalaldur 64,8 ár). Sautján sjúkling-
anna höfðu öndunarfæraeinkenni fyrir grein-
ingu. Algengustu einkennin voru hósti án upp-
gangs, mæði og hiti. Einkenni höfðu sjaldan
varað lengur en í átta vikur fyrir innlögn.
Teikn við líkamsskoðun voru almennt fátækleg
og voru innöndunarbrakhljóð algengust. Vægt
blóðleysi, hækkað sökk, lítilsháttar fjölgun
hvítra blóðkoma og ildisskortur í slagæðablóði
fannst iðulega. Þéttar (alveolar) íferðir voru
algengar breytingar á lungnamyndum þessara
sjúklinga. Sýnataka með berkjusjá var gerð í
átján tilfellum og leiddi til greiningar í fimmtán
þeirra (83%).
Sex sjúklingar (32%) voru með BOOP af
óþekktum toga. Þrettán (68%) voru með
BOOP í tengslum við bakteríulungnasýkingar,
sjálfsofnæmissjúkdóma eða illkynja æxli. Tólf
sjúklingar voru meðhöndlaðir með barksterum
(prednísólón 30-60 mg/dag) í mislangan tíma
og leiddi það til bata í öllum tilvikum. Versnun
var hins vegar algeng og kom fyrir hjá ríflega
helmingi þeirra (57%). Gátu liðið allt að tíu
mánuðir þar til hún kom fram og barkstera-
skammtar höfðu iðulega verið minnkaðir niður
fyrir 15 mg/dag. Sjúklingum batnaði aftur
þegar barksteraskammtar voru auknir á ný.
Fjórir sjúklingar fengu eingöngu sýklalyf og
hlutu þeir allir bata.
BOOP í tengslum við þekktan orsakavald hefur
ávallt verið talið sjaldgæft og hin háa tíðni þess
í okkar sjúklingahópi er einstök. í ljósi þessa
mælum við með gaumgæfilegri leit að með-
virkandi kvilla (t.d. lungnasýkingu) við upp-
vinnslu á BOOP. Barksterameðferð er kjör-
meðferð við BOOP þó svo að versnun sé
algeng á meðferðartíma.
BREYTINGAR í BLÓÐI OG SERMI VIÐ
REYKINGAR OG REYKBINDINDI
Þorsteinn Blöndal, Heilsuvemdarstöð Reykjavfkur/
Lyflækningadeild Landspítalans, Döra Lúðvíksdóttir
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Þorvaldur Veigar
Guðmundsson, Rannsóknastofa Landspítalans í
Blóðmeinafræði, Mikael Franzon Kabi Pharmacia og Sif
Ormarsdóttir, Lyflækningadeild Akademiska sjúkrahússins
í Uppsölum.
Tilgangur rannsóknarinnar var að huga að mæligildum
blóðrauða, hvítra blóðkoma, kólesteróls, háþéttni
lípóprótína (HDL), þríglýserfða (TG), ffbrfnógens, TSH,
T4, T3 og immúnóglóbúlín E (IgE) hjá þeim sem reykja og
hvort þessi gildi breytist við reykbindindi.
Aðferðir: Mælingar vom framkvæmdar með hefðbundnunt
hætti af Rannsóknastofu Landspítalans í Blóðmeinafræði.
Efniviðurinn var 157 reykingamenn sem tóku þátt f
námskeiði gegn reykingum. Sýni vom tekin áður en þeir
hættu að reykja og svo eftir þrjár vikur, þrjá mánuði, sex
mánuði og tvö ár. Þátttakendur vom slembaðir og fengu af
handahófi ýmist nikótín nefúða í allt að eitt ár eða lyfleysu
með piparefni. Gögnin að neðan miðast við sex mánaða
lylgitfma hjá þeim sem þá vom enn f reykbindindi. Við
tölfræðircikning var notað parað t-próf.
Niðurstöður: Meðalgildi blóðrauða breyttist frá 145.9 í
142.7 g/1 (p<.000). Hvít blóðkom breyttust úr 8.00 í 6.28
(pcOOO). Meðalgildi kólesteróls (sermi breyttist úr5.76 í
6.29 (p<.004). Meðalgildi HDL breyttist úr 1.28 f 1.38
(p<.001). Meðalgildi TG breyttist úr 1.37 í 1.50 (p<.370).
Fíbrínógen í sermi breyttist úr 3.55 í 3.14 (pcOOO). IgE
breyttist úr 47.7 í 41.2 (pc527).
Ályktanir: Reykbindindi hafði áhrif til lækkunar á hvít
blóðkom, sem túlka má sem merki um minni bólgu í
líkamanum. Fíbrínógen lækkaði og HDL hækkaði sem em
áhrif í þá átt að bæta áhættuspegil æðakölkunar. Hækkun á
kóiesteróli og þríglýseríðum verkar þó á móti og getur
byggst á því, að hjá þcim þar sem reykingar tóku sig ekki
upp hækkaði líkamsþyngd umtalsvert.