Kjarninn - 07.11.2013, Side 16
03/04 kjarninn efnahagsmál
heldur einungis það sem hann hefur
keypt fyrir. Sem dæmi voru kröfur
á Glitni seldar á um þrjú prósent
af nafnvirði í nóvember 2008 þegar
margir vogunar- og fjárfestingasjóðir
byrjuðu að kaupa þær. Virði þeirra
hefur allt að tífaldast í verði. Krafa
sem keypt var á einn milljarð króna
gæti því verið allt að tíu milljarða
króna virði í dag.
Burlington-sjóðurinn hafði
fjárfest fyrir rúmlega 2,7 milljarða
punda, 524 milljarða króna að
nafnvirði, í lok síðasta árs. Það eru
þeir peningar sem sjóðurinn hefur eytt í fjárfestingar en sú
upphæð tekur ekki tillit til þeirrar virðisaukningar sem orðið
hefur á eignunum sem hann hefur keypt.
Í ársreikningnum kemur fram að 16 prósent fjárfestinga
sjóðsins hafi verið á Íslandi, eða um 84 milljarða króna.
Þegar tekið er tillit til þeirrar virðisaukningar sem orðið
hefur á sumum kröfum sjóðsins hérlendis er ljóst að hann
á eignir sem verðmetnar eru hið minnsta á vel á þriðja
hundrað milljarða króna. Miðað við væntar endurheimtir hjá
Glitni var hlutur Burlington í bankanum til dæmis metinn
á 241,3 milljarða króna í maí síðastliðnum. Burlington er
langstærsti kröfuhafi bankans. Auk þess er vert að taka fram
að fjárfesting Burlington í Bakkavör telst bresk, ekki íslensk.
Fékk afhentan hlut í Klakka
Holt Funding, sem er svokallað SPV-félag sem Glitnir á
óbeint að öllu leyti, átti 28,4 milljarða króna kröfu í þrota-
bú Klakka sem hefur verið í ágreiningi í lengri tíma. Fyrr á
þessu ári, nánar tiltekið hinn 11. september, fékk Holt Fund-
ing afhentan 7,9 prósent hlut í Klakka í samræmi við nauða-
samning félagsins sem skuldajöfnun vegna þessarar kröfu.
Hlutirnir voru greiddir með nýju hlutafé. Þar með var Glitnir
orðinn óbeinn stór eigandi að Klakka, sem á meðal annars
Hinn gjaldþrota Glitnir
Burlington er langstærsti
kröfuhafi glitnis. Þrotabú
glitnis eignaðist nýverið
óbeint hlut í Klakka.
Burlington á um fimmtung í
Klakka.