Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 28
Íslendingar færðu sér landfræðilega stöðu sína í nyt til að
ná hagstæðum samningum í Þorskastríðunum þar sem látið
var í það skína að gengið yrði úr Atlantshafsbandalaginu og
samskiptin við Sovétríkin aukin til muna, hættu Bretar ekki
að beita valdi gagnvart íslensku Landhelgisgæslunni.
Íslendingar tefldu djarft við samningaborðið en höfðu
sterka stöðu og voru í takt við alþjóðlega þróun þess tíma um
útfærslu landhelgi til verndar fiskistofnum. Óttinn við úr-
sögn Íslands úr NATO var tromp sem átti ríkan þátt í að skila
Íslendingum bestu mögulegu niðurstöðu í hinni langvinnu
deilu.
Öryggissamstarf við Bandaríkin
En þegar ráðamenn meta strategíska stöðu rangt er ekki von
á góðu. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar mistókst
illilega að vinna með landafræðina í samningunum við
Bandaríkjamenn sem lauk með brotthvarfi varnarliðsins árið
2006. Sambandinu við Bandaríkin var klúðrað með röngu
stöðumati, misheppnaðri strategíu um hverju ná skyldi fram,
og samningatækni þar sem hurðum var skellt fremur en að
leita að sameiginlegri lendingu við Bandaríkjastjórn sem
virtist einbeitt í sínum ásetningi að draga saman seglin á
Íslandi og nýta herafla sinn annars staðar. Þegar Keflavíkur-
stöðinni var lokað töluðu áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum
meira að segja um að slíta ætti varnarsamningnum.
Vegna áhugaleysis og vantrúar forystu Sjálfstæðis-
flokksins á áhrif loftslagsbreytinga og hvernig þær myndu
leiða til gjörbreyttrar umræðu um stöðu norðurslóða var ekki
leitast við að þróa samvinnu áfram til sameiginlegra verk-
efna, heldur haldið dauðahaldi í horfna stöðu Kalda stríðsins.
Þegar forseti Íslands hóf að vekja athygli á hættunum sem
sköpuðust af loftslagsbreytingum á norðurslóðum kallaði
forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins það að hann væri að
mála skrattann á vegginn og skrattinn væri óskemmtilegt
veggskraut. Þetta varð meðal annars til þess að ekkert hafði
verið unnið með hugmyndir um sérstaka sameiginlega
miðstöð fyrir leit og björgun á norðurhöfum fyrr en Össur
03/10 kjarninn stjórnmál
„Sambandinu
við Bandaríkin
var klúðrað með
röngu stöðumati,
misheppnaðri
strategíu um
hverju ná skyldi
fram, og samn-
ingatækni þar
sem hurðum var
skellt fremur
en að leita að
sameiginlegri
lendingu við
Bandaríkjastjórn
sem virtist ein-
beitt í sínum
ásetningi að
draga saman
seglin á Íslandi.“