Kjarninn - 27.03.2014, Side 5

Kjarninn - 27.03.2014, Side 5
02/03 lEiðari það nefnilega ekki um öll skólastigin. Og hvað á þá að bjóða leikskóla-, grunnskóla- og háskólakennurum þegar þar að kemur? styttingarsporin hræða Framhaldsskólar og háskólar, aðallega Háskóli Íslands, hafa á undanförnum árum þurft að taka við gríðarlegum fjölda nýrra nemenda á sama tíma og skorið hefur verið niður í hverju horni. Allir sem ekki höfðu vinnu eftir hrun áttu að fara í skóla, en það þurfti að mennta fleiri fyrir minna. Skólakerfið hefur sýnt aðlögunarhæfni og þolinmæði í þessum aðstæðum en það er ekki hægt að halda endalaust áfram á þessari braut. Sá sparnaður sem gæti hlotist af því að hag- ræða á þessum náms stigum ætti auðvitað að fara í leiðréttingu á þessari ömurlegu þróun. Stundum er látið eins og kennarar séu á móti styttingu framhaldsskólans af eigin- gjörnum ástæðum, þeir vilji ekki missa spón úr aski sínum. Líklegra verður þó að teljast að sporin hræði þá, enda ekki mörg ár liðin síðan framhaldsskólarnir þurftu að berjast gegn vanhugsuðum fyrirætlunum um styttingu námsins. Hefðu þær fyrirætlanir náð fram að ganga hefði framhalds- skólanám á Íslandi hreinlega skerst verulega og námið orðið einhæfara. Það var þess vegna sem skólastjórar, kennarar og nemendur voru upp til hópa á móti styttingunni eins og átti að útfæra hana. Í framhaldinu hefur hins vegar verið unnið að þessum málum og ég veit ekki betur en að langflestir skólar landsins bjóði nemendum nú upp á þann möguleika að klára námið á skemmri tíma. töfralausn ekki í boði Það er heldur ekki hægt að láta eins og stytting sé einföld aðgerð sem hafi engar afleiðingar í för með sér aðrar en að spara peninga. Taka þyrfti tillit til fjölmargra þátta sem „Ef það á að halda náminu eins og það er, en bara þjappa því á þrjú skóla- ár, þarf bæði að lengja skólaárið og auka álagið.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.