Kjarninn - 27.03.2014, Page 8
02/06 Efnahagsmál
þ
eir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra kynntu blaðamönnum tvö
frumvörp um leiðréttingu höfuðstóls verð-
tryggðra fasteignalána í Iðnó síðdegis í gær. Á
sama tíma var frumvörpunum dreift á Alþingi.
Frumvarpanna hefur verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu, en tvímenningarnir kynntu leiðréttinguna
svokölluðu á stórum fundi í Hörpu í lok nóvember. Málið
er risavaxið fyrir ríkisstjórnina, enda ein helsta ástæða
þess að Framsóknarflokkurinn komst til valda eftir síðustu
alþingiskosningar.
Frumvörpin fjalla annars vegar um beina niðurfærslu á
höfuðstóli verðtryggðra húsnæðis-
lána og hins vegar lagabreytingar
þannig að fólk geti annaðhvort
safnað sér í formi séreignar-
sparnaðar og varið upphæðinni
til niðurgreiðslu á höfuðstóli
húsnæðis láns eða til fjárfestingar í
húsnæði. Séreignarsparnaðurinn verður skattfrjáls á þriggja
ára tímabili, frá og með 1. júlí á þessu ári.
breytt viðmiðunartímabil
Þegar leiðréttingin var kynnt á áðurnefndum blaðamanna-
fundi var fullyrt að hún myndi ná til þeirra sem voru með
verðtryggð húsnæðislán á tímabilinu frá því í desember árið
2007 til ársloka 2010. Í frumvarpinu um höfuðstólslækkunina,
sem kynnt var í gær, hefur tímabilinu verið breytt og nær nú
til fasteignalána sem veitt voru á tímabilinu 1. janúar 2008 til
31. desember árið 2009. Spurður um breytt viðmiðunartímabil
svaraði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson því til að það hefði
auðveldað úrvinnslu mikið og breytingin hefði ekki áhrif á
hópinn sem hefði verið undir í upphafi.
Umsóknartímabilið hefst 15. maí næstkomandi og lýkur 1.
september síðar á þessu ári. Umsóknum skal beina til Ríkis-
skattstjóra, sem mun annast úrvinnslu þeirra, en embættið
Efnahagsmál
Ægir Þór Eysteinsson
L@aegireysteins
„Þá kemur fram í frumvarpinu
að mikil óvissa ríki um efna-
hagsleg áhrif aðgerðanna og
áhættuþættir séu fjölmargir.“