Kjarninn - 27.03.2014, Blaðsíða 11
05/06 Efnahagsmál
almenn aðgerð, sem er ekki svo almenn
Tæplega 74 þúsund heimili voru skráð fyrir verðtryggðum
lánum vegna kaupa á fasteignum til eigin nota í árslok 2009.
Mikill meirihluti þeirra, rúmlega níu af hverjum tíu, á rétt á
niðurfærslu höfuðstóls, annaðhvort með beinni niðurfærslu
eða nýtingu séreignarsparnaðar. Rúmlega fimm þúsund
heimili sem voru skráð fyrir verðtryggðum fasteignalánum
í árslok 2009 eiga ekki rétt á niðurfærslu. Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sagt að skulda-
leiðréttingin muni ná til um hundrað þúsund heimila í
landinu. Í landinu eru hins vegar 128 þúsund heimili.
Samkvæmt frumvarpinu munu um 44 prósent af heildar-
umfangi leiðréttinganna renna til heimila með árstekjur
undir sex milljónum króna, og rúmlega 60 prósent af um-
fangi leiðréttinganna til heimila með árstekjur undir átta
milljónum króna. Athygli vekur að meðalfjárhæð á hvert
heimili hækkar eftir því sem tekjur eru hærri. Í frumvarpinu
er það fyrirkomulag rökstutt með því að tekjuhærri heimili
séu að jafnaði skuldugri ern þau tekjulægri. Þetta þýðir þá
að fjörutíu prósent skuldaniðurfellingarinnar, eða um 32
milljarðar króna, munu renna til heimila sem eru með átta
milljónir króna eða meira í árstekjur.
hlutdeild hópa af heildarniðurfærslu
Hér má sjá hvernig skuldaniðurfellingin skiptist á milli skuldugra heimila
25%
20%
15%
10%
5%
0%
0-2 m 2-4 m 4-6 m 6-8 m 8-10 m 10-12 m 12 m+