Kjarninn - 27.03.2014, Síða 19

Kjarninn - 27.03.2014, Síða 19
06/07 lífEyrismál þjóðin mjög ung sem stendur. Raunar voru einungis 36 þúsund þeirra rúmlega 320 þúsund Íslendinga sem voru á lífi í lok árs 2013 yfir 67 ára aldri. Hagstofa Íslands spáir því að árið 2060 verði þeir 97 þúsund, tæplega þrisvar sinnum fleiri. Og þá er einungis verið að horfa til þess að greiða lágmarkseftirl aunalífeyri. hætta á fátæktargildru Eyjólfur Lárusson, framkvæmdastjóri Allianz á Íslandi, hefur unnið úttekt á stöðu íslenska lífeyriskerfisins. Í henni kemur fram að lágmarkskostnaður þess að lifa af, sam- kvæmt framfærsluviðmiði Velferðarráðuneytisins, sé 290 þúsund krónur. Lífeyrissjóðir og Tryggingastofnun ríkisins greiða í dag í kringum 40 prósent af launum í lífeyri við skattbyrði veLt á komandi kynsLÓðir Íslenska ríkið er í ábyrgð fyrir skuldbindingar op- inberra lífeyrissjóða. Það þýðir að sá hluti eftir- launa sem sjóðs félagar hafa unnið sér inn en sjóðirnir geta ekki staðið undir verður greiddur úr ríkissjóði. Í lok árs 2012 námu heildarskuldbindingar Lífeyris sjóðs starfs- manna ríkisins, stærsta lífeyrissjóðs landsins, um 450 milljörðum króna umfram eignir. Í lok árs 2012 höfðu heildarskuldbindingar verið meira en tíu prósentum hærri en eignir lífeyrissjóðsins í fimm ár í röð. Sá munur má reyndar, samkvæmt lögum, ekki vera meiri en fimm prósent í fimm ár samfleytt. Og þessi halli eykst ár frá ári. Til að rétta hallann af þarf að hækka iðgjöld, skerða greiðslur eða hækka eftirlaunaaldur. Eða gera sitt lítið af hverju. Enginn vilji er eðlilega hjá forsvarsmönnum stéttarfélaga opinberra starfsmanna til að semja um verri lífeyriskjör fyrir skjólstæðinga þeirra án þess að eitthvað annað, til dæmis töluverðar launahækkanir, komi á móti. Þrátt fyrir að viðræður hafi staðið yfir árum saman um lausn á þessum gríðarlega vanda, sem er ekki færður sem skuld á ríkisreikning þótt hann sé það sannarlega, hafa þær ekki skilað neinni niðurstöðu. Hrafn Magnússon, sem var framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða í hátt í fjóra áratugi, skrifaði grein í Kjarnann í október 2013. Á meðal þess sem hann fjallaði þar um er sá halli sem er á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. „Þetta er grafalvarleg staða sem versnar með hverju ári sem líður ef ekki er gripið til viðeigandi ráðstafana. Hallinn á LSR og lífeyrissjóðum sveitarfélaga er áhyggjuefni fyrir alla þjóðina því með þessu ástandi er verið að velta skattbyrðinni yfir á komandi kyn- slóðir,“ sagði Hrafn í greininni. Í úttekt Eyjólfs Lárussonar, framkvæmdastjóra Allianz, á lífeyrissjóðakerfinu kemur fram að íslenska ríkið þyrfti að greiða árlega 31,3 milljarða króna í 20 ár til að klára að greiða þessa skuld. Í dag greiðir ríkið ekkert í hítina og hefur ekki gert frá hruni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.