Kjarninn - 27.03.2014, Side 59

Kjarninn - 27.03.2014, Side 59
02/07 pistill sinna. Hluti þeirra aðila sem sinna eftirliti með starfsemi lög- reglu eru tengdir henni, þ.e. innanríkisráðuneytið og innan- ríkisráðherra sem er æðsti yfirmaður lögreglunnar í landinu og ríkissaksóknari sem er æðsti handhafi ákæruvalds. Lögreglustjórar heyra undir innanríkisráðherra þegar kemur að meðferð lögregluvalds en þegar kemur að rannsókn og saksókn mála heyra þeir undir ríkissaksóknara. Í þessu felst að ýmsar ákvarðanir lögreglustjóra sem ekki tengjast rannsókn og saksókn mála eru kæranlegar til innanríkisráðherra, t.d. ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli 15. gr. lögreglulaga, auk þess sem innanríkisráðherra hefur almennt eftirlit með starfsháttum lögreglu sem æðsti yfirmaður hennar. Þar á meðal tekur hann við kvörtunum vegna starfsemi lögreglu og tekur þær til frekari meðferðar eftir atvikum hverju sinni eins og dæmi eru um. Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglunnar í umboði innanríkisráðherra og hefur m.a. það hlutverk að flytja og kynna lögreglustjórum boð og ákvarðanir æðstu handhafa ríkisvaldsins sem snerta starfsemi lögreglunnar og vinna að og fylgjast með að þeim ákvörðunum sé fylgt í starfsemi lögreglunnar. Hlutverk ríkissaksóknara þegar kemur að eftirliti með starfsemi lögreglu er einkum tengt því að ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds í landinu. Hann gefur út almennar reglur og fyrirmæli um meðferð ákæruvalds og hefur jafnframt eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá öðrum ákærendum, þ.e. lögreglustjórum. Ríkissaksóknari getur gefið öðrum ákærendum fyrirmæli um einstök mál sem þeim er skylt að hlíta. Hann getur kveðið á um rann- sókn máls, mælt fyrir um framkvæmd hennar og fylgst með henni eins og fjallað er um í lögum um meðferð sakamála. Ýmsar ákvarðanir sem lögreglustjórar taka í tengslum við rannsóknir mála eru kæranlegar til ríkissaksóknara og segja „Meðal þeirra ver- kefna sem innri endurskoðun lög- reglunnar á höfuð- borgarsvæðinu sinn- ir er að kanna hvort stjórnendur og aðrir starfsmenn emb- ættisins fari eftir lögum, reglugerðum og ákvörðunum sem stjórnvöld hafa sett um starfsemi þess.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.