Kjarninn - 27.03.2014, Page 73
03/04 markaðsmál
en áður. Fjölmörg fyrrtæki veita þjónustu á þessu sviði, en
nefna má tvo tölvurisa sem margir þekkja, Microsoft með
Windows Azure og Amazon sem býður Amazon Web Services.
Sem dæmi má nefna að Netflix keyrir þjónustu sína á tölvu-
skýi Amazon og íslenska ofursprotafyrirtækið Plain Vanilla
gefur milljónum aðdáenda aðgang að QuizUp-leiknum með
fulltingi Amazon. Já, Amazon gerir margt fleira en að vera
„aðeins“ ein stærsta vefverslun í heimi.
hugbúnaður í áskrift sparar fyrirtækjum stórfé
Fyrirtæki geta fengið aðgang að gríðarlegu úrvali af notenda-
hugbúnaði í áskrift. Á ensku nefnist slík þjónusta software
as a service. Auðvelt er að fá aðgang að skrifstofuhugbúnaði
frá Microsoft sem kallast Office 365, en það færist í vöxt að
fyrirtæki séu með áskrift að fullkomnum hugbúnaði í áskrift.
Dæmi um slíkt eru Microsoft Dynamics NAV-bókhaldskerfi,
Mailchimp-markaðssetningakerfið eða skrifstofu hugbúnaður
eins og fyrrnefnt Office 365 og Google Apps for Business.
Fyrirtæki geta sparað verulega fjármuni með þessum
hætti, til dæmis geta þau breytt fjölda áskrifenda eftir
umfangi rekstursins, en það sem skiptir sjálfsagt meira máli
er að þörf þeirra fyrir að eiga og reka tölvubúnað minnkar
stórlega. Verkefni stjórnenda breytist við þetta, þeir þurfa
síður að berjast við flókinn og dýran rekstur á tölvukerfum
en í staðinn þurfa þeir að vanda valið á þeim hugbúnaði og
tölvulausnum sem eru fengin í áskrift. Þeir standa einnig
frammi fyrir þeirri staðreynd að ef þeir skaffa ekki nægi-
lega góðar lausnir munu starfsmenn einfaldlega bjarga sér
sjálfir um þær með tilheyrandi álitamálum sem tengjast
upplýsingaöryggi.
tölvuský inn á hvert heimili
Tölvuský hafa einnig mikil áhrif á daglegt líf okkar.
Afþreyingar veitur eins og Spotify, tonlist.is og Netflix
hafa gjörbreytt aðgengi neytenda að tónlist, kvikmyndum
og sjónvarps þáttum en hafa minnkað löngun þeirra til
að nota þjónustu vídeóleiga, kaupa geisladiska og horfa á