Kjarninn - 27.03.2014, Page 77
02/05 kVikmyndir
auðvelt að missa af þeim breytingum sem eiga sér stað frá
einni kvikmynd til annarrar og þeirri þróun sem hefur átt sér
stað í myndum hans.
Einblínt á fjölskyldusambönd
Hingað til hafa allar myndir Andersons fjallað um fjöl-
skyldusambönd á einn eða annan hátt. Bæði Bottle Rocket og
Rushmore fjalla um unga menn í leit að nýjum feðrum eða
foreldrum; The Royal Tenenbaums segir frá þremur undra-
börnum sem hafa orðið bitur og týnd í lífinu á fullorðinsár-
um og um hvernig fjölskyldufaðirinn sem
brást þeim reynir að komast aftur í mjúkinn
hjá fjölskyldunni.
Í The Life Aquatic tekst haffræðingurinn
og heimildarmyndaleikstjórinn Steve Zissou
á við dauða besta vinar síns á meðan hann
kynnist ungum manni sem gæti verið sonur
hans. Bræðurnir í The Darjeeling Limited
ferðast um Indland með látinn föður sinn
nánast bókstaflega í farteskinu.
Refurinn frábæri í The Fantastic Mr.
Fox er kannski besti holdgervingur glataða
pabbans í verkum Andersons – hann reynir og lofar að fórna
sínum eigin áhugamálum fyrir hag fjölskyldunar en endar
með því að setja sjálfan sig og alla sem hann elskar í hættu.
Loks í Moonrise Kingdom verður hinn munaðarlausi Sam
ástfanginn af Suzy, sem þráir ekkert meira en að losna undan
fjölskyldu sinni.
pólitísk heimsmynd brýst inn í ýktan sagnaheim
Þessar myndir hafa allar endað á einhvers konar uppgjöri.
Fjölskyldur koma saman – gömul, slitin tengsl lagast og ný
skapast. Hlutirnir eru ekki alltaf fullkomnir, en það er greini-
legt að þeir munu batna. Það er því ákveðið sjokk að upplifa
nýjustu mynd Andersons, The Grand Budapest Hotel, sem
er bæði fyrsta mynd hans þar sem einhvers konar pólitísk
heimsmynd brýst inn í ýktan sagnaheiminn og fyrsta mynd
„Þegar hinir ímynduðu
ZZ-foringjar ráðast inn í
lestina í Zubrowka er Wes
Anderson-heimurinn í fyrsta
skipti ekki mjög huggulegur
staður – en hann er einnig
í fyrsta skipti mjög líkur
okkar raunverulega heimi.“