Kjarninn - 27.03.2014, Page 78

Kjarninn - 27.03.2014, Page 78
03/05 kVikmyndir hans sem endar á tóni sem vísar till aukinnar eyðileggingar og niðurrifs í stað aukinnar samheldni eða uppbyggingar. Meginhluti myndarinnar gerist í hinu ímyndaða ríki Zubrowka árið 1932 þar sem finna má túristaperlu Austur- Evrópu: The Grand Budapest Hotel – sem áhorfendur kynnast í gegnum flóttamanninn unga Zero. Þegar Zero hefur störf sem vikapiltur kynnist hann móttökustjóra hótelsins, Monsieur Gustave, sem er í raun aðalaðdráttarafl hótelsins fyrir marga gesti. Hann sér um allt fyrir alla og leggur sérstakan metnað í að sjá um þær ríku eldri dömur sem heimsækja hótelið. Þar skemmtir hann þeim og sinnir bæði andlegum og líkamlegum þörfum þeirra. Þegar Madame D, einn af eftirlætisgestum Gustave, deyr við dularfullar kringumstæður leikur grunur á að hann hafi komið henni fyrir kattarnef, grunur sem verður sterkari þegar það kemur í ljós að Madame D arfleiddi Gustave að dýrasta og verðmætasta mál- verkinu sínu. með annan fótinn í raunveruleikanum Þrátt fyrir að gerast í heimi sem er ýktur og stílfærður hafa kvikmyndir Andersons alltaf verið með annan fótinn í raunveruleikanum – þó að það sem við sjáum sé ekki raunverulegt eru þær tilfinningar sem persónurnar upplifa algerlega raunverulegar. Hins vegar hefur pólitískt raunsæi ekki átt sér stað í myndum Andersons, en nú, þegar The Grand Budapest Hotel gerist í Austur-Evrópu á árunum fyrir seinni heimsstyrjöldina, er ris fasismans óumflýjanlegt. Þegar Zero og Gustave ferðast til þess að votta dánu frúnni virðingu sína er lest þeirra stöðvuð af fasískum hermönnum, í búningum merktum „ZZ“, sem í móttöku hótelsins Aðalsöguhetjan starfar sem vikapiltur á Grand Budapest Hotel í hinu ímyndaða ríki Zumbrowka.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.