Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Qupperneq 9

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Qupperneq 9
NÝJAR KVÖLDV ÖKUR 59 roða á hverjum konuvanga og smábörn gripu dauðahaldi í mæður sínar, án þess að vita hvers vegna. En sá sem vissi — einn fyrir alla — var Knútur Possi: Höfðu Moskovitar nokkurntíma herjað landið án þess að svívirða konur þúsund- um saman? Höfðu þeir ekki stungið í gegnum þær og skilið við þær bundnar og hálfdauðar, til þess að þær yrðu björn- um og úlfum að bráð? — Og smábörnum voru þeir vanir að safna saman í knippi og brenna þau lifandi — það var naum- ast einn einasti meðal allra þeirra mörgu, er nú voru samankomnir í kastalagarð- inum, sem höfðu eigi mist börn eða syst- kini á þennan hátt..... Ungi maðurinn, sem sat á hestinum, benti á bæinn og landið umhverfis: »Við flýttum okkur hingað — og sjáðu — alt sem getur gengið og skriðið flýr nú hingað úr bænum, til þess að leita sér hælis innan virkismúranna — enginn get- ur lýst angistinni«. Og það var satt, það var ómögulegt að lýsa ofboðinu og angistinni, sem gagn- tekið hafði hvern einstakan, þegar almúg- inn nú í stórum hópum ruddist inn fyrir múra kastalans með húsdýr og búshluti: Hestarnir tryltust, hundarnir geltu og góluðu, geitur og sauðfé jarmaði, kýr bauluðu — og innan um alt þetta var fult af grátandi börpum og biðjandi konum. Knútur Possi reyndi að fá hljóð, en raust hans druknaði í hávaðanum, þar sem hann stóð mitt í þrengslunum. f sama bili sást frú Sigríður uppi á hinum háu steintröppum fyrir hallardyr- unum. Rödd hennar hljómaði ofan að, óvænt, skýrt. — Fólkið þagnaði ósjálfrátt og leit upp. öllum fanst eins og þeir aldrei á æfi sinni hefðu séð neitt svo tigulegt og sef- andi sem frú Sigríði, þar sem hún stóð °g gaf fyrirskipanir, er þegar greiddu úr verstu vandræðunum. Á lítilli stundu var búið að skilja hin óstýrilátu dýr út úr þvögunni, svo að konur og böm gátu kornist inn í höllina. Það var ekki of snemma, sem fólkið úr Wiborg og grendinni hafði leitað skjóls innan virkismúranna: Áður en dagurinn var liðinn höfðu hinir rússnesku rán- flokkar safnað sér saman og slegið hring um kastalann líkt og blóðþyrst slanga. Þeir settu upp steinslöngur og múrbrjóta og hófu þegar umsátina með mongólskum ákafa. — Hvert sem Knútur leit mættu honum augu, sem hræðslan skein úr — en trúnað.irtraustið líka — ef nokkrum ætti að takast að frelsa fólkið frá skelf- ingum, sem voru verri en dauðinn, þá var það Knútur Possi. En hjarta hans bifaðist -— og það skalf stöðugt meira og meira af trega og á- hyggjum: Moskovitar stormuðu virkið með villidýrsæði. Heilar hjarðir af þeim féllu, en þ>að var engu líkara, en að þeim fjölgaði altaf.... Knútur vissi vel, að hann var altof fáliðaður, og hann var altof sorglega viss um, hver endirinn hlaut að verða. Þegar hann velti þessu fyrir sér, stál- ust hugsanir hans inn í turnhvelfinguna ... eitt einasta lævirkjaegg fult af galdra- bruggi hans... og honum gæti auðnast að frelsa alla þá, er honum var trúað fyrir. En sál hans.....? í rökkrinu um kveldið hófu Rússar upp óp mikið — langt, vofeilegt, samróma óp, og síðan gerðu þeir harða hríð að virkinu á meðan myrkrið skall á. Knútur Possi, og allir, sem inni fyrir voru, vissu hvers nú var að vænta: f nótt.... f nótt koma þeir — hin ægilegu úrslit voru fyrir höndum. Frú Sigríður benti bónda sínum til tals við sig og fór með hann inn í lítið, kringlótt hvelfingar-herbergi, sem lok- 8*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.