Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Side 29

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Side 29
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 79 Lurteislega, þegar hann settist við borð ■«itt nærri þeim og pantaði mat. Bersýnilega var Maruffi óheppinn í 'spilunum. Hann sat ygldur á brún úti í horni og bölvaði öðru hvoru. Það hefði verið ágætt efni fyrir Martel -Savigni að draga upp af honum mynd, hugsaði Blake og horfði á vangann á f- ~talanum. Allir voru niðursokknir í spilin. Á- horfendurnir gláptu, og borðlögin ukust geysilega. Cæsar tapaði að nýju og hinir fóru að hlægja og stríða honum. Sikiley- ingurinn barði hinni stóru, loðnu hendi sinni í borðið svo glösin og peningarnir dönsuðu. Hann var afmyndaður í framan ■og röddin var hás af reiði. »Silenzio!« Hinir þögnuðu óttaslegnir. Hin sama kæfandi æsing, sem greip Norvin er háska bai' að höndum, tók hann nú heljartökum. Hann fjekk kuldaskjálfta og herbergið hringsnerist fyrir augum hans. Skömmu síðar fann hann, að hann hafði staðið á fætur og að hann ríg- ihjelt sjer í borðið. Dúkurinn var allur i'auðflekkóttur af víni því, er hann hafði belt úr bikar sínum. Honum fanst það 'vera blóð Martels Savigni. Hinar háværu raddir skýrðust betur og betur fyrir honum, eins og hann væri að rakna við úr öngviti, en rauði bletturinn 'óx jafnt og þjett uns honum virtist hann sjá alt í herberginu í rauðri þoku. Hann mundi ekki að hann hafði farið út, fyr en hann fann svalan næturvindinn ieika um enni sjer í einni af dimmustu þvergötum bæjarhlutans. Altaf sá hann skuggalegt andlit, yglt á svip, fyrir hug- skotssjónum sínum og stöðugt heyrði hann hið hása skipunarorð: »Silenzio!« Eitt einasta orð, þrungið af reiði og hatri, hafði leitt hann aftur í tímann um mörg ár. Hann sá aftur dimman fjallveg- inn í fjöllum Sikileyjar. Eldspýtu var brugðið upp og hið afmyndaða andlit Ricardo Ferara glotti við honum. Hann heyrði Martel Savigno hrópa, heyrði rödd hins unga greifa hækka og enda í angist- arópi, heyrði dynjandi hófaslög í myrkr- inu. Sikileyiskir menn horfðu í andlit honum og töluðu í æsingu og gegnum þvaður þeirra skar sama röddin, bjóðandi og reiðiþrungin: »Silenzio!« Það var ekki um neitt að villast. Blake mintist þrekins manns, er bar við næturhimininn í skini eldspýtunnar, og þegar hann nú greip samhengið, þá rak hann upp óp á miðri götunni. Hann mundi eftir hinum leyndardómsfullu orð- um Donellys, 5 mínútum fyrir dauða hans: »Sje það satt, sem jeg hefi kornist að, verða það hin mestu tíðindi«. Cæsar Maruffi sami maður og Belisario Cardi! Það voru sannarlega merkistíð- indi! Blake staðnæmdist andartak til þess að vita hvar hann væri. Hann var í miðjum ítalska bæjarhlutanum og hann hrökk saman, er hann sá að hann hafði ósjálf- rátt gengið í áttina til húss Vittoriu Fabrizi. Með því að beita öllu viljamagni sínu, náði hann valdi yfir geðshræringu sinni. Hann þarfnaðist nú umfram alt góðs heilræðis um það, hvernig hann ætti að snúast í máli sínu. Ef til vill var þetta vísbending, að minsta kosti hraðaði hann förinni heim til hennar. Þegar hann kom í húsið og beið eftir því að opnað yrði, fór hann að hugsa málið, en æsingin um kvöldið hafði tekið svo á hann, að Vittoria hrópaði strax og hún sá hann: »Vinur minn! Hefur nokkuð komið fyrir?« Hann stóð á fætur og gekk á móti henni. »Já, dálítið, sem er voðalegt!«

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.