Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Side 41
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
91
til Prognerselsins. Á síðustu árum hafa miklar
treytingar orðið í Oslo og stórir, gamlir bæjar-
hlutar hafa orðið að víkja fyrir nýtísku stór-
borgarstrætum. Fræg er hin breiða, beina Carl
Jóhans gata, sem liggur upp að höllinni. f hin-
um svonefnda Stúdentalundi stendur þjóðleik-
húsið með líkneskjum af Ibsen og Björnson. Af
öðrum opinberum minnismerkjum má nefna
minnismerki Kristjáns konungs 4., Thorden-
skjolds, Karl Johans (Bernadotte, síðar konung-
Ui' Karl 14. Johan), Wergelands, Welhavens og
stærðfræðingsins Abels. — Á seinni árum hefir
höfnin verið stækkuð mikið og talað er um að
hyggj a tollfrjálsa höfn. Mikla þýðingu fyrir
borgina hefir Björgvinarbrautin haft. — í Oslo
ei' háskóli, listasöfn, stór bókasöfn og eitt forn-
minjasafn. — Nafnið Kristjania var borginni
gefið af Kristjáni konungi 4., sem þó er ekki
nema aðeins í óeiginlegri merkingu upphafsmað-
ui' hennar. Löngu áður en hann grundvallaði
þennan nýja bæ, var þarna annar bær, sem hjet
Oslo og- er hann þegar nefndur 1051; að minsta
kosti er getið um kaupstefnu í Oslo í kringum
1200. Það var fyrst eftir að Oslo hafði brunnið
í ágúst 1624, að Kristján 4., í september sama
ár, stofnaði þennan. nýja bæ, Kristjaníu. Nú er
búið að skíra borgina upp og var henni gefið
sitt gamla nafn aftur. Uppruni nafnsins Oslo er
vafasamur. Sennilega er það dreg'ið af ás og
getur hafa þýtt engið undir ásnum. Hjá Oslo
stendur hinn æfagamli kastali Akershus, sem er
frá 13. öld. Þegar Noregur skildi við Danmörk
eftir Kielarfriðinn 1814, varð Oslo höfuðborg
Noregs.
36. Kapstaðurinn.
Eftir að ófriðurinn við Búa (1899—1902) var
til lykta leiddur, sameinuðust hinar bresku ný-
lendur: Kapríkið, Natal, Orangefljótsríkið og
Transwaal í eina sjálfstæða ríkisheild: Banda-
ríki Suður-Afríku. Stjórnarsetrið er Prætoria,
höfuðborgin í Transwaal, en stærsta borgin er
Johannesburg. Þó ber að skoða Kapstaðinn sem
höfuðborg ríkjanna. Stendur hann við flóann
Table-Bay og hafði, þegar síðasta manntal fór
fram, ca. 250.000 íbúa, þegar úthverfin eru talin
með. Af þeim fjölda eru þó miklu færri hvítir
menn; hitt eru Kaffar, Hottentottar og Malayar.
Hinir síðastnefndu eru afkomendur þræla þeirra,
sem Hollendingar á sínum tíma fluttu inn frá
Austur-Indlandi. Meðal hvítra manna eru Hol-
lendingar fjölmeimastir. Borgin var mjög þýð-
ingarmikil meðan siglingar frá Evrópu til Ind-
lands og Austur-Asíu voru fyrir sunnan Afríku.
Þrettán, núll, núll.
Eftir Claude Marsey.
Þeir, sem þektu mig fyrir 5 árum, vita,
að um það leyti var jeg mjög auralaus
vesalingur, sem orðinn var vonlaus um,
að úr rættist. Jeg varð að vinna baki
brotnu hjá gömlum, ágjörnum málflutn-
lngsnianni til að hafa ofan af fyrir mjer.
Peningabudda mín var venjulega tóm og
jeg sá engin ráð til að mjer áskotnaðist
neitt, sem hægt væri að láta í hana.
Jeg átti enga ættingja aðra en gamlan
föðurbróður, sem jeg í mesta lagi sá einu
sinni á ári. Hann var álitinn ríkur og