Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Page 44

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Page 44
94 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Mjer virtist svar mitt gera ungu stúlk- una órólega, en hún fór ekki nánar inn á þetta umtalsefni. Við fórum að spjalla um annað, það er að segja: ást okkar. Meðan við nú gengum þarna hlið við hlið, varð jeg dálítið hugrakkari og ósjálfrátt bar jeg fram ástarjátningu mína. öll okkar samansparaða samúð varð að einni sterkri kend. Þegar við skildum, lofuðum við hvort öðru því, að við skildum hittast aftur. Og þegar jeg kom heim á litla herbergið mitt, fleygði jeg mjer í gleði minni og hrifningu upp í rúmið, og þar eð jeg var þreyttur eftir þessa miklu geðshræringu, fjell jeg í fasta svefn. Mig var einmitt að dreyma eitthvað svo yndislega fagurt, þegar þrifið var harkalega í hurðarhúninn og þrumuraust reif mig upp úr draumum mínum. Þetta var Justin föðurbróðir minn. »Nú, er það á þennan hátt, að þú gerir gys að mjer, minn ágæti Lionek, hrópaði hann og skalf af reiði. »Nú hefir dóttir vinar míns beðið eftir þjer í fjórtán daga og altaf vonast eftir, að þú ljetir eitthvað heyrast frá þjer«. »Já, en.... Jeg hefi nú símað til hennar á hverjum degi í fjórtán daga, frændi«. »Hefir þú símað til Maríu?« »Nei, til Albínu«. »Hver er Albína?« »Sú, sem hefir símanúmer: Miðstöð þrettán, núll, núll«. »ólánsræfill! Þú hefir tekið vitlaust eftir. Jeg sagði þjer að það væri: Miðstöð núll, núll, þrettán«. »Nei, frændi. Það ert þú, sem hefir far- ið skakt með, því að jeg skrifaði númerið, sem þú nefndir við mig, undir eins hjá mjer. Tilviljunin hefir orðið þess vaid- andi, að ung stúlka hefir svarað mjer, við höfum kynst hvort öðru og við höfum gengið saman. Hún er alveg yndisleg. Jeg elska hana, hún elskar mig og......« Föðurbróðir minn þreif með báðum höndum utan um höfuð sjer og tautaði: »Þetta er nú fullmikið af því góða. En það, sem er skeð,er skeð. Jeg vona þó, að þessi Albína þín sje efnuð?« »Jeg veit ekkert um það«. »Það var þó merkilegur atburður. En fyrst hann er svona merkilegur, verð jeg þó að leyfa mjer þann munað, að gefa þjer upphæð þá, sem jeg hafði lofað«. Föðurbróðir minn efndi loforð sitt og Albína og jeg hjeldum brúðkaup okkar. Svb. O. þýddi. Heimilistýraninn. (úr sænsku). Æ, æ, æ, þetta eilífa stríð milli karla og kvenna!.... Frænka hafði verið óvenjulegastygglynd við frænda hérna um daginn, þegar þau sátu að dagverði. Hún skipaði honum að skera þynnri sneiðar af svissneska ostin- um og bannaði honum að blása á velling- inn — vellingurinn átti að vera heitur! sagði hún. Svo kallaði hún hann »gamalt naut« — og nýja vinnukonan þeirra heyrði þetta, — ef það hefði verið sú

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.