Sagnir - 01.06.1992, Síða 7

Sagnir - 01.06.1992, Síða 7
Þorgerður Hrönn Þorvaldsdóttir Það mælti mín móðir Um hetju- og hefndaruppeldi í íslendingasögum Mig langar til að bjóða ykkur með í dálítið ferðalag. - Það kostar ekki mikið, enda er aðalfarkosturinn fjörugt ímyndunarafl og svo auðvitað ritaðar heimildir sem eiga að vísa okkur leið í gegnum frumskóg for- tíðarinnar. í þessari ferð virðum við öll landamæri að vettugi og gefum tímanum langt nef. I stað þess að strunsa galvösk á áfangastað tökum við stundum á okkur króka til þess að víkka sjóndeildarhringinn og skerpa skilning okkar á því sem síð- ar mun bera fyrir augu. „Fyrirheitna landið“ er íslenska þjóðveldið þar sem „hetjur riðu um héruð“ og „hjuggu mann og annan“. Það eru þó ekki hetjurnar sjálfar sem fanga athygli okkar að þessu sinni heldur kvenskörungarnir sem stóðu að tjaldabaki, einkum þó „hetjumæðurnar". Það sem tendraði þennan áhuga voru rannsóknir erlendra fræðimanna sem tóku að grúska í „menningararfi okkar", fslend- ingasögunum sem við höfðum til skamms tíma litið á sem hrein- ar bókmenndr. Erlendu fræðing- arnir beittu aðferðum mannfræð- innar við rannsóknir sínar. f stað þess að velta vöngum yfir sann- leiksgildi og dlvist einstakra atburða eða persóna beindu þeir sjónum sín- um að samfélaginu, vettvangi at- burðanna og komu þar auga á ýmis konar félagsleg og hagræn kerfi. Ut frá þessu nýja sjónarhorni hefur tekist að draga fram úr fortíðarþokunni heildstæða og lifandi rnynd af samfé- lagsskipan þjóðveldisins. Þjóðfélagið sem myndin sýndi kom mannfræð- ingum kunnuglega fyrir sjónir því að hún reyndist um margt hliðstæð því sem þeir þekktu úr samtímarann- sóknum, til dæmis tfrá Korsíku, Svart- fjallalandi og Alban- íu. Þjóðfélag sem kallast á máli fræðanna blóð- hefndarsamfé- lag.1 í blóðhefndarsamfélögum má hinn mjúki maður sín lítils. Þar eru hvorki miðstjórnarvald né sameiginlegt framkvæmdarvald. Hver og einn þarf stöðugt að standa vörð um heiður sinn, gæta þess að gjalda jafnan líku líkt, hefna fyrir misgjörðir og meið- yrði eða vera álitinn ragur ella.2 Kon- ur gegna mikilvægu hlutverki í að viðhalda blóðhefnd en eru um leið þrælar hennar. Þær hafa ekkert opin- bert vald en með því að hvetja karl- kyns fjölskyldumeðlimi til stöðugra dáða og hreystiverka styrkja þær eig- in stöðu og treysta um leið ríkjandi kerfi. Samfélagið krafðist þess að mæður eldu syni sína upp til hetju- dáða og hefndar. Á bak við tjöldin sáu þær til þess að hefndin gleymdist aldrei, jafnvel þó að slíkt myndi kalla á gagnhefnd og áframhald- andi blóðsúthellingar. En nú er tilvalið að bregða sér í fyrsta lautartúrinn. Við skul- um staðnæmast í norðurhluta Albaníu um miðja nítjandu öld. Þar er til frásögn af fnnmtán ára dreng sem dag einn dró fram byssu og skaut granna sinn. Með drápinu var hann að hefna föður síns sem ná- granninn hafði vegið þegar strákur- inn var aðeins barn að aldri og enn ófær um að framfylgja hefndarskyld- unni. Fimmtán ára gamall hafði stráksi loks öðlast þroska og styrk til að endurheimta heiður fjölskyldunn- ar og blóðhefnd var hafin að nýju. Nú er viðbúið að einhverjir fussi enda teljast það varla tíðindi þó að maður drepi mann einhvers staðar í útlöndum, víðsfjarri þjóðveldinu okkar bæði í tíma og rúmi. Það sem gerir þessa drápsögu áhugaverða í okkar samhengi er það að drengurinn átti ekki frumkvæðið sjálfur heldur var hann hvattur áfram og sendur út af móður sinni. Mamman vissi mæta vel að með þessu færi blóðhefndin af stað að nýju. Víg myndi koma fyrir víg, sonur hennar yrði næsta fórnar- lamb og hún stæði eftir ein. En sál eiginmannsins vitjaði hennar stöðugt SAGNIR 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.