Sagnir - 01.06.1992, Side 15

Sagnir - 01.06.1992, Side 15
frænku sinnar. í Reykjavík átti hún marga trygga aðdáendur og þegar myndir hennar voru sýndar var að- sókn jafnan góð. Ekki spillti fyrir að skautaíþróttir áttu upp á pallborðið í höfuðstaðnum, voru ein helsta skemmtun íjölmargra bæjarbúa yfir vetrartímann. Tjörnin var þéttskipuð fólki þegar vel viðraði og ósjaldan var spiluð tónlist og stiginn skauta- dans. Sumir reyndu jafnvel að leika listir átrúnaðargoðsins eftir. Mörgum Islendingnum brá því í brún haustið 1942 þegar Morgunblaðið endursagði greinina úr Modern Screen því ljóst þótti að kvikmyndin Iceland lýsti landsmönnum á heldur vafasaman hátt. Kjötkveðjuhátíð og Hotel Jorg Iceland gerist í Reykjavík skömmu eftir að bandarísku landgönguliðs- sveitirnar, „U.S. Marines“, koma þangað í júlí 1941. Sögusviðið kom fslendingum afar undarlega fyrir sjónir. Höfundar myndarinnar virt- ust skálda hvaðeina sem þeim datt í hug. Þeir bjuggu t.d. til nýja þjóð- búninga sem líktust helst norskum búningum og í þeim dansar fólk hálf- færeyska dansa í Ólafsvökustíl við undirleik hljóðfæraleikara sem eru klæddir líkt og svissneskir fjallagarp- ar. Á Tjörninni í miðbænum er auk þess haldin gríðarleg „Snjóhátíð" til styrktar Rauða krossinum þar sem fram fara mikilfengleg skautahlaup enda myndin sniðin að þörfum skautadrottningarinnar. Hátíðin er ein allsherjar Holly- woodskrautsýning þar sem ægir sam- an stílbrigðum frá öllum heimshorn- um og hún vitnar um mikið ríki- dæmi Islendinga, líkt og maturinn sem borinn er á borð fyrir gesti og gangandi. Og kjötkveðjuhátíðin í lok myndarinnar er ekki síður stórbrotin. Hún fer einnig fram á Tjörninni og þar er m.a. stiginn tilkomumikill skautadans frá Kína, Hawaii og Pan- ama með tilheyrandi búningum.6 Einn galli er þó á gjöf Njarðar. Þótt ótrúlegt sé, virðist myndin gerast í júlí. Allt er þakið snjó og ís og helsta skemmtun innfæddra sem útlendinga eru skautahlaupin. Tjörnin er gadd- freðin og því ekki að undra að blaða- menn Morgunblaðsins spyrðu þegar þeir kynntu myndina fyrst:7 „Hvern- ig skyldu höfundar kvikmyndarinnar hugsa sér veðráttuna á íslandi á Þorr- anum þegar aðalskemmtun landsbúa er skautahlaup seinast í júlí?“ Tjörnin er mikilvæg í Iceland en „Hotel Jorg“ skiptir ekki síður máli sem sögusvið. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja, gestirnir borða tugi tegunda af „smjörogbrauði", eða „smorgasbord“ eins og það er kallað, og dansa við hljóðfæraslátt fjölmenn- rar og skrautlegrar hljómsveitar. Raunar leikur hljómsveit Sammy Kaye sjálfa sig og nokkur vinsæl lög heyrast í myndinni, t.d. „You Can’t Say No to a Soldier", „There Will Never Be Another You“, „Lover’s Knot“ og „Let’s Bring New Glory to Old Glory“, sem Joan Merrill syng- ur. Fyrir utan Tjörnina og Hotel Jorg, sem sver sig miklu fremur í ætt við glæsisali dansstaða í New York en „Borgina", sést lítið af Reykjavík. Þó bregður kaupfélaginu fyrir eins og vera ber í mynd sem gerist á íslandi og fáeinir braggar sjást. Annað sem vekur athygli eru ýmsir íslenskir siðir og venjur sem búnir hafa verið til svo fléttan geti gengið upp, einkum í tengslum við giftingar. Þá eru undar- legar og á stundum býsna skondnar brúðkaupsserimoníur áberandi. Auk þess kynnist áhorfandinn hinum mik- ilvæga „Sankti Ólafsdegi" og hvað hann sé heppilegur brúðkaupsdagur og einnig „Sankti Ólafskirkjunni" sem á líklega að vera dómkirkjan í Reykjavík. Var nokkur furða að landsmenn yrðu forviða? Aurasjúkir íslendingar Hafi sögusviðið komið Islending- um spánskt fyrir sjónir gerðu per- sónur myndarinnar það ekki síður. Hún segir frá ástarævintýri banda- rísks liðþjálfa og íslenskrar stúlku, en inn í það fléttast tilvonandi brúðkaup „Helgu“, systur þeirrar íslensku, og „Valtýs", sem er sonur auðugs síldar- gróssers. Hlutverk dátans, „James Murfin“, er í höndum John Payne,

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.