Sagnir - 01.06.1992, Síða 21

Sagnir - 01.06.1992, Síða 21
Annálaskólinn En hvað má segja um framtíð Ann- álahreyfmgarinnar og hvert stefnir í franskri sagnfræði? „Það er erfitt mál að segja frá því. Menn eru vanir að tala um þrjár kyn- slóðir annálamanna, frá því að fyrsta kynslóðin kom fram, upp úr 1920. En spurningin er hvort það verður nokkur fjórða kynslóð? Nú ættu að verða kynslóðaskipd í sagnfræði, því þessir gömlu risar eins og Le Goff og fleiri eru orðnir rosknir og í þann veginn að fara á eftirlaun eftir að hafa unnið rnikið starf. En það eru ekki neinir ótvíræðir erfðaprinsar og mað- ur sér ekki í fljótu bragði að það sé neitt nýtt að rísa upp. Svo er annað, það er að annálahreyfingin hefur að vissu leyti sigrað og breiðst út yfir allt og fyrir bragðið hefur hún ekki lengur eins skýra stefnu og áður. Segja má að hún sé nú þynnt út í ein- hverskonar eklektisma. Það er ekki lengur um að ræða skýra hreyfmgu með ákveðna afstöðu. Eins og stend- ur fmnst mér því dálídð erfitt að átta mig á því hvað er að gerast, það er erfitt að benda á eitthvað alveg nýtt, nýja strauma sem séu að koma fram.“ - Getur uerið að nú eigi sér stað uppgjör við þá áherslu sem annálungar lögðu á efnahagslífið sem undirstöðu sögunnar? „Ég veit það ekki alveg. Það má nátt- úrulega ekki gleyma því, þegar litið er á heildina og ekki aðeins á sagn- fræði, að það liggur við að marxismi hafi verið opinber trúarbrögð franskra menntamanna, frá því fljót- lega eftir stríð og þangað til í kring- um 1974, þótt það sé kannski erfitt að benda á ákveðna dagsetningu. Þetta kom ekki síst fram í mikilli áherslu á efnahagssögu. Það sem einkenndi aðra kynslóðina var að hún beindi áhuganum að langmestu leyti að efnahagssögu í víðri nrynd og rnörg þau svið sem fyrsta kynslóðin hafði rannsakað hurfu alveg í skuggann, einkum hugarfar og slíkt. En þessu fylgdi sú kenning, sem var kannski ekki sögð berum orðum en lá gjarnan að baki þessara rannsókna, að efna- hagssagan væri einhvers konar hreyfiafl allrar sögunnar og menn ættu því að rannsaka efnahagssöguna til þess að fá skilning á einhverjum grundvallarlögmálum í sögu. Það er kannski erfitt að einangra sagnfræð- ina út af fyrir sig, því þetta var al- mennt fyrirbæri í frönsku menntalífi og kom af stað miklum deilum og umræðum sem geisuðu kannski meira á öðrum sviðum. Og það voru einstaka menntamenn sem voru and- vígir marxisma og deildu á slíkar kenningar. Fremstur þeirra var kann- ski Raymond Aron. Hann skrifaði merka bók árið 1938, sem heitir Inn- gangur að söguspeki, og leitast þar við að hrekja kenningar marxisma um sögulega nauðsyn og slíkt. Eftir stríð lenti hann síðan í hörðum ritdeilum við skólabróður sinn Jean-Paul Sartre og fleiri menn og varð fyrir hrikalegu aðkasti alls staðar. Eftir að marxis- minn féll af stalli árið 1974 liggur manni við að segja að það hafi komið í ljós að Raymond Aron hafði rétt fyrir sér.“ - Að það sé þá uokkurs konar tómarúm núna? „Já, en það er kannski nokkuð við- kvæmt mál vegna þess að fjölda- margir menn af þessari kynslóð, sem fylgdu þessari tísku eiga erfitt með að viðurkenna að Raymond Aron hafi haft rétt fyrir sér þegar öllu er á botn- inn hvolft. Þeir eru fallnir frá fyrri skoðunum en það væri of mikið átak fyrir þá að viðurkenna að gagnrýni og ádeilur Raymond Aron hafi átt við rök að styðjast. Þannig að þeir hafa sveigt út á nýjar brautir án þess beinlínis að gera upp sakirnar við marxismann. Það má segja það að stökkbreyt- ingin mikla hafi orðið á miðjum ferli þriðju kynslóðarinnar og er það nokkuð athyglisvert. Margir þessir sagnfræðingar sem teljast til þriðju kynslóðar Annálahreyfmgarinnar byrjuðu nefnilega á saina sviði og önnur kynslóðin; þeir byrjuðu á þjóðfélags- og efnahagsrannsóknum og lýðsögu eða fólksfjöldasögu og slíku og það leiddi þá svo yfir á nýjar brautir, sem sé hugarfarssögu. Og þetta gerðist raunverulega áður en marxisminn sem slíkur féll af stalli. Við þessa stefnubreytingu er einnig rétt að tengja Michel Foucault. Það er mjög furðulegt - og ég held að menn hafi ekki veitt því almennilega efdrtekt - að þegar Michel Foucault er í fyrstu verkum sínum að rannsaka hluti sem eiga lítið skylt við marx- isma, svo sem sögu geðveikinnar og slíkt, setur hann öðru hverju fram einhver slagorð úr hinum furðuleg- asta dólganrarxisma - sem koma eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Kemur þetta stundum eins og köld gusa yfir mann þegar maður er að lesa verkin og virkar eins og einhver undarlegur tvískinnungur, eins og einhver varaþjónusta við opinber trú- arbrögð, - þetta hefur aldrei almenni- lega verið gert upp held ég. En eftir 1974 var Michel Foucault ekki með neina varaþjónustu heldur fordæmdi hann marxismann. Ég veit ekki hvort þetta kenrur beint fram í bókum, en það var áberandi í viðtölum og yfir- lýsingum.“ „Ný saga . . . angi af nýju matargerðarlistinni“ „Ég held ég hafi nefnt það í blaða- grein, sem menn hafa vonandi ekki lesið að ný saga var tískuorð sem blaðamenn fundu upp. Allt í einu var það lenska að tala um nýja þetta og SAGNIR 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.