Sagnir - 01.06.1992, Síða 31

Sagnir - 01.06.1992, Síða 31
Karlastörf. Stjówmál cru karlastöif og ekki rið hæf kvenna. kollega sinna því að hann segir það fáránlegt af þeim að halda því fram að karlar og konur séu jöfn. „Eg skil ekki þetta“, segir hann,“ og verð að halda, að það sé alveg rakalaust, því eg held að eðlismismunurinn verði alstaðar álíka mikill."30 Pólitík ruglar hið rétta eðli kvenna. „Sá eðlismis- munur, sem er, má ekki missa sig“, ítrekar hann. „Þegar fram í sækir og til lengdar lætur rná vera að hugsun- arháttur kvenna breytist, en þá leys- ast líka heimilin upp.“ Og til að ít- reka sannleiksgildi staðhæíinga sinna bætir hann við: „Þetta kalla nú sumir fjarmæli, en margir vitrustu menn heimsins eru nú samt á þessari skoð- un.“31 Af ræðu hans má sjá að hann er svartsýnn á framtíðina ef konur fengju kosningarétt og kjörgengi og finnst greinilega mikið ólán ef Al- þingi samþykki lög sem opnuðu konum leið inn í stjórnmálaheiminn. „Eðlismunur karla og kvenna verður ekki afnuminn með alþingislögum", segir Jón. „Sá munur er mikill og merkilegur, og sérhvað það, sem eins og þessi nýmæli, [kosningaréttur kvenna] miðar til að gera þann mun minni eða sljófga náttúrlegt eðli, er skaðlegt og hefnir sín með aukinni ófarsæld þeirra, er hlut eiga að máli.“32 Það er greinilegt að þing- maðurinn var þeirrar skoðunar að heimurinn færi versnandi ef þing- menn gættu ekki að sér og færu var- lega í sakimar í að veita konum laga- leg réttindi til jafns á við karla. Bylt- ingarvoði og þjóðarvá gætu hlotist af ef konur fengju kosningarétt. Afstaða þingmanna í þeim efnum er samt sem áður ekki alveg einróma. Til dæmis telur Sigurður Gunnarsson ekki hægt að slá því föstu að neitt versni við það að konur gæfu sig að þjóðmálum.33 Nafni hans, Sigurður Sigurðsson, álítur það óæskilegt og sér að minnsta kosti enga' þjóðar- nauðsyn á að hrapa að því að veita konum kosningarétt.34 Eggert Páls- son segir að konur eigi sömu mann- réttindi skilið og karlmenn og þing- menn ættu ekki að láta það blekkja sig þótt konum hefði verið „fyrir vald hnefaréttarins, meinað að njóta þeirra fram til þessa.“3:> Enjónjóns- son, fyrsti þingmaður Suður-Múla- sýslu, er ósammála því að konur eigi skilið full mannréttindi og segist vera svo sannfærður, sem maður getur verið, að öll þessi svonefnda kvennréttindahreyfing, sem nú er að ná yfirtökunum, er óheillaspor, gönuspor mannkynsins, er hlýtur að leiða til vaxandi lífskvalar, sem þó mun varla verða ábætandi. Og það er sannarlega ekki með léttum hug, sem eg geng að því verki, að samþykkja þessi nýmæli.36 Já, menn hafa oft orðið að stíga stór skref og þung á hinu háttvirta Al- þingi! Pilsafælni Árið 1881 segir Eiríkur Kúld að ef konur fengju rétt til að bjóða sig fram í sveitar- og bæjarstjórnarkosningum þá gæti svo farið að í hreppsnefnd yrðu eintómar komir „en það verð jeg að álíta miður heppilegt," segir hann. Eiríki finnst einnig að það myndi koma „nokkuð skrítilega fyr- ir, að sjá tómar konur í bæjarstjórn Reykjavíkur."37 Árið 1891 leggur Skúli Thoroddsen fram frumvarp um kjörgengi þeirra kvenna sem fengu kosningarétt til sveitarstjórna árið 1882 , og segir til að friða starfsbræð- ur sína: „En þó að vjer veitum þess- um fáu konum, sem hjer er um að ræða, kjörgengi, þá þarf enginn að SAGNIR 29
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.