Sagnir - 01.06.1992, Page 33

Sagnir - 01.06.1992, Page 33
í Barimskðlaportimi árið 1915. Hátíðarhöld í vœndum. Kosiiingaréttur kveima í höfn. konur ekki hafa þroska til að fá kosn- ingarétt eftir sömu reglum og karlar. Hann bendir á vilja kvenna sjálfra; undirskriftalistana til Alþingis þar sem konur báðu um kosningarétt. Þjóðmál varða alla, segir hann, og brýnt sé að bæta úr þessum órétti strax „og það til fulls, eins og konur eiga heimtingu á.“51 Skúli spyr einnig hvort þingmenn væru alveg sann- færðir um að konur þyrftu fremur en karlar að afla sér pólitískrar upp- fræðslu. Konur lesa blöð og fylgjast með málum engu síður en karlar, segir hann og bætir við; og viðvíkjandi þeirri mótbáru, að kvenfólkið ekki vilji blanda sér í pólitík, og sé þess vegna ófrótt um þá hluti, þá vil eg að eins benda á það, að fjölda margir karlmenn eru ekki þroskaðri en það, að það er nærri því að setja rnann í kvala- ástand, að tala við þá um landsmál, svo að því leyti eru þeir að engu fremri konum og þess vegna engin ástæða til að svifta þær kosningar- rétd af þeim sökum.52 Hannes Hafstein er á sama máli og Skúli Thoroddsen. Það væri lítil sanngirni í því að Alþingi gæti veitt stráklingum á aldrinum 21-25 ára kosningarétt en neitaði að veita hann þroskuðum konum undir fertugsaldri á þeim forsendum að þær væru of fá- fróðar um stjórnmál. „Þetta er mis- rétti, sem eg ómögulega get fellt mig við,“ segir Hannes, „misrétti, sem ekki á neina rót í þekkingarmun, heldur að eins í kynferði, sem í þessu efni ekkert kemur málinu við.“53 Eggert Pálsson segist hins vegar vita að konur væru almennt óviðbúnar kosningaréttinum og þess vegna væri ísjárvert að auka tölu kjósenda um meira en helming allt í einu einkum þar sem líklegt væri að hinar „yngri og óþroskaðri“ myndu frekar kjósa en þær „eldri og gætnari".34 Hannes Hafstein var bersýnilega ekki haldinn neinni hræðslu við dóm- greindarleysi og pólitískan óvitahátt kvenna undir fertugu, og spyr þing- menn þegar aftur er karpað urn ald- ursmörkin árið 1913: „Hver er líka sönnunin fyrir því, að fólkið sé fær- ara til þess að nota kosningarrétt sinn, þó það oldist um öll þessi ár? Flestir munu vera orðnir að mestu fullþroska þegar þeir eru 25 ára“, bætir hann við.33 Bjami Jónsson frá Vogi segir að ef menn óttist bylting- arvoða fái konur kosningarétt, þá sé nær að óttast of mikið íhald ef svo yrði því „allir ... vita, að konur eru mikið fastheldnari við það sem gam- alt er en karlmenn. Það er alkunnugt og viðurkent í öllum bókum, sem urn sálarfar manna ræða“, heldur hann áfram og bædr því við að þetta sé mjög skiljanlegt því að hjá konum ráði kenndirnar meiru en umhugsun- Kosningaréttur í áföngum Það var íhaldsemi stjórnmálamanna sem varð ofan á árið 1913 þegar ákveðið var að konur væru ekki færar um að kjósa nema vera orðnar fer- tugar og eldri. Það var talið „var- hugavert, að fjölga svo mjög kjós- endurn alt í einu, að núverandi kjós- endur sjeu sviftir mest öllu valdi yfir SAGNIR 31

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.