Sagnir - 01.06.1992, Side 36
Gísli Gunnarsson
Um falda bók
og aðra forboðna
og dálítið um ættardramb
Hér verður um það rætt hvern-
ig saga 20. aldar ruddist
óboðin inn í sagnfræðirann-
sóknir höfundar á 17. og 18. öldinni og
hvernig hann komst að því í þessum
rannsóknum sínum hversu miskunnar-
laust og forheimskandi þýski nasisim-
inn afskræmdi öll fræði á sínum tíma.
Safnið Carl von Ossietzky
í tvo mánuði, frá og með 2. viku
aprílmánaðar á þessu ári (1992),
stundaði ég rannsóknir í sagnfræði í
Þýskalandi og Danmörku. Fólust
þær einkum í því að athuga tengsl
þýskra landa, og þá einkum
borga (og borg-
ara), við íslandverslunina á tímum
einokunar, aðallega á 18. öld. Ég var
þannig að rekja þráðinn þar sem frá
var horfið í bók minni Upp er boðið
Isaland. . . (1987) um efni þetta, nán-
ar tiltekið kafla 5.3, „Hamborg og
Gluckstadt".
Það kom mér að miklu gagni í at-
hugun þessari að finna heimildir í
Carl von Ossietzky bókasafninu í
Hamborg og kynna mér efni
þeirra. Hér var um að ræða
sameiginlegt háskóla- og
borgarbókasafn Hamborgar
og var þar að finna flest ef
ekki allt sem ritað hafði verið
um þýska sögu, einkum sögu
Hamborgar og nágrannabyggða
hennar.
Nafn safnsins á sér þessa sögu:
Carl von Ossietzky var þýskur
friðarsinni, f. 1889, d. 1938.
Snemma á 3ja áratugnum stofnaði
hann friðarsamtök og gaf út tímarit
málstað sínum til stuðnings. Einkum
barðist hann gegn endurhervæðingu
Þýskalands og vegna þess sat hann í
fangelsi, dæmdur fyrir „landráð",
Titilsíða „Földu bókarinnar. ‘
1931 -1932. Við valdatöku nasista,
snemma árs 1933, var hann meðal
þeirra fyrstu sem settir voru í fanga-
búðir. Hann var berklaveikur og
heilsu hans hrörnaði ört.
Árið 1935 veitti nefnd norska stór-
þingsins Carl von Ossietzky friðar-
verðlaun Nóbels. Þetta olli miklu
fjaðrafoki meðal valdhafanna í
Þýskalandi sem bönnuðu af þessu til-
efni öllum þýskum ríkisborgurum að
taka við Nóbelsverðlaunum af hvaða
tegund sem var! Ossietzky var lofað
margvíslegri umbun ef hann hafnaði
þeim. Þessu neitaði hann og því
héldu nasistar honum helsjúkum í
fangabúðun þar til skömmu áður en
hann dó árið 1938.
I kynningarbæklingi um bókasafn-
ið var nafn þess útskýrt ítarlega. Þar
með fengu allir þeir sem bæklinginn
lásu þekkingu um sérstæðan kafla
þýskrar sögu.
Margt getur gerst við
heimildaleit
Til að finna heimildir á Carl von
Ossietzky bókasafninu hafði ég þann
hátt á að leita þeirra vandlega á við-
eigandi stöðum í safnskránum, panta
síðan á lessal allar bækur sem hugsan-
lega gætu komið mér að gagni og at-