Sagnir - 01.06.1992, Side 56
Óskar Bjarnason
„Thule, land mitt,
hvar ertu?a
Um fslandsáhuga Þjóðverja
á tímum Weimarlýðveldisins
Landkynning er búin að vera
okkur fslendingum hugðar-
efni í nokkurn tíma og mikið
um hana rætt og ritað. Okkur er síð-
ur en svo sama hvað aðrar þjóðir
halda um okkur og við viljum að
hingað komi ferðamenn sem eru
áhugasamir, kaupi þjónustu okkar og
- síðast en ekki síst - beri okkur vel
söguna þegar heim er komið.
Sú þjóð sem hvað mestan áhuga
hefur haft á íslandi og íslendingum
síðustu öldina eða svo eru Þjóðverj-
ar. Þeir hafa líka ferðast um landið
öðrum fremur og skrifað reiðinnar
býsn um land og þjóð. Þessa sér-
stöðu má rekja aftur fyrir síðustu
aldamót en Weimartíminn var
blómaskeið Islandsáhuga í Þýska-
landi og reyndar samskipta þjóðanna
á ýmsum sviðum. En af hverju fs-
land? Hvað höfðu Þjóðverjar hingað
að sækja? Með hvaða augum litu þeir
íslendinga?
Þjóðverjar leggjast í
ferðalög
Þriðji áratugurinn hefur fengið á sig
nokkurn dýrðarljóma í sögu Vestur-
landa. Þetta var tími uppbyggingar,
tækniframfara, litríks skemmtanalífs,
nýrra listastrauma og bjartra vona.
Með því að velmegun jókst og al-
menningssamgöngur bötnuðu tóku
ferðalög einnig mjög að aukast. Þótt
Þjóðverjar byggju við bág kjör í lok
fyrra stríðs réttu þeir fljótlega úr
kútnum og tóku aftur til við að ferð-
ast um heiminn til skemmtunar og
rannsókna. Á meðan þeim var bann-
að að framleiða herskip rann upp öld
farþegaskipanna. Þýsku skipafélögin
hleyptu hverju farþegaskipinu af
öðru af stokkunum, hófu reglulegar
siglingar til Vesturheims og
skemmtisiglingar um heimsins höf.
íslendingar fóru ekki varhluta af
ferðagleði Þjóðverja og er leið á ára-
tuginn tóku þýsk skemmtiferðaskip
að venja komur sínar til landsins,
hlaðin forvitnum og ævintýraþyrst-
um Þjóðverjum. Við bættist að um
miðjan áratuginn hóf Eimskipafélag
fslands, að kröfu íslenskra kaup-
manna, Hamborgarsiglingar sem áttu
eftir að verða mikil lyftistöng fyrir
samskipti þjóðanna. Reykvískir
kaupmenn í leit að nýtískulegum
vörum fóru að venja koinur sínar á
þýskar kaupstefnur, námsmenn í
uppreisn gegn dönsku hefðinni sett-
ust á þýska skólabekki og síðast en
ekki síst tók þýskt fslandsáhugafólk
að streyma til landsins.
Hvað vissi fólk um ísland?
Fyrir þýskum almenningi var ísland
öðru fremur framandi sögu- og æv-
intýraland. Nafn þess var síður tengt
eldfjöllum, jöklum eða hverum.1
Ýmsir rithöfundar rómantíska tímans
höfðu notað landið og söguheim þess
Þriðji áratugurinn var mikill uppgangstími skemmtisiglinga. Skipafélagið Norddeutsche
Lloyd hleypti hverju farþegaskipinu á fœtur öðru af stokkunum og lentu sum þeirra í ís-
lenskum höfnum hlaðin þýskum túristum. Hcr sjást Europa og Bremen, smíðuð 1929-30.
Þau t’oru stœrstu farþegaskip vcraldar, vógu 50000 tonn hvort um sig.
54 SAGNIR