Sagnir - 01.06.1992, Síða 74

Sagnir - 01.06.1992, Síða 74
um. Þetta var tímabil örra breytinga á samfélaginu. fslendingar voru að berjast fyrir bæði formlegu og eigin- legu sjálfstæði sínu. Eftir að sigrar höfðu unnist í baráttunni fyrir form- legu sjálfstæði þjóðarinnar þurfti að sanna að íslendingar gætu staðið sem sjálfstæð þjóð og við það ærðist upp metnaðurinn hjá þeim. Þeir þurftu að sanna sig bæði fyrir sjálfum sér og öðrum þjóðum. Enda kom sterkt fram við upphaf myndlistar á fslandi að listamennirnir ættu að vera land- inu til sóma erlendis. I grein árið 1925 í Lesbók Morgunblaðsins segir: Hver hefði trúað því fyrir svo sem 20 árum að árið 1925 ætti ísland heilan hóp listamanna í hljómlist- um, málara- og myndhöggvalist. Og meðal þeirra menn sem náð hefðu viðurkenningu og hlotið að- dáun úti í heimi, fengið náð fyrir stóradómi menningarþjóðanna gömlu, sem hafa lifað við list eyra og auga um aldaraðir.29 fslenska þjóðin var að sanna sjálfa sig með því að hefja listamenn sína upp til vegs og virðingar. Enginn íslendingur hafði sést á leiksviði myndlistarinnar unr langan aldur. Því urðu þeir að sækja af enn meiri krafti fram á sviðið, til að sýna fram á að þeir ættu fullan rétt á að kallast menningarþjóð. Og listamennirnir voru í ákjósan- legri stöðu til að svara kalli þjóðar- innar. Þeim var lokuð leið að styðjast við innlendan listsögulegan bak- grunn, því hann var ekki til. Því leit- uðu þeir í ríkum mæli í sagnabrunn- inn, þjóðsögur og íslendingasögur sem og í íslenska náttúru, eftir inn- taki listsköpunnar sinnar. „Inntakið átti að undirstrika uppruna lista- mannsins, íslenska menningu"30 og umhverfi. En listamennirnir sóttu allir menntun sína til útlanda og gengu þar inn í vestræna myndlistarhefð. Þegar þetta blandaðist saman, ís- lenskt inntak og vestræn myndlistar- hefð, varð til fagleg en þjóðleg ís- lensk myndlist. Og þessi þjóðlega myndlist var svar listamannanna við kalli þjóðarinnar og hefur ýtt undir metnað hennar til að vinna sem stærsta sigra á sem flestum sviðum. Við flatningsborðið - Slagsmál - Saumakona Meistari Kjarval birti auglýsingu í blöðunum 10. maí árið 1927, þar sem hann varaði fólk við að fara á árlega sýningu Listvinafélagsins, sem þá var haldin í húsakynnum þess. Hann áleit að hættu stafaði af að vera í miðsal hússins „vegna sprunginna veggja og rangrar byggingar á þakinu.“31 Það sem lá að baki þessari auglýsingu hef- ur líklega verið að vekja ugg hjá fólki svo að það myndi ekki álpast inn í þennan illræmda miðsal. Þar voru nokkrar gifsmyndir eftir Einar Jóns- son, Ríkarð Jónsson og Guðmund Sœnmndtir á selnurn eftir Ásmund Sucins- son. Vcrkið var gert í París 1926 og vakti upp þjóðarstolt íslendinga þegar það komst á sýningu þar árið 1929. Einarsson frá Miðdal, sem allir voru mjög mikils metnir af þjóðinni sem myndhöggvarar. Um þessar myndir sagði Valtýr Stefánsson í gagnrýni: „Skal eigi dæmt um hver er ljelegust. Má vart á milli sjá. Ber mest á mynd- um Guðm. Einarssonar. Minna á haglega gerðar snjókerlingar."32 En á þessari sýningu sýndu þrír yngri listamenn sem nýkomnir voru að utan: Gunnlaugur Óskar Schev- ing, Snorri Arinbjarnar og Þorvaldur Skúlason. Guðbrandur Jónsson sagði þetta um myndir þeirra í Alþýðu- blaðinu: „Mynd Óskars [Gunnlaugs Schevings] „Við flatningsborðið" er óefað besta myndin á sýningunni; myndi hún draga að sér athygli hvar sem væri. Aðrar rnyndir hans eru og vel gerðar. ... Snotrar byrjenda- myndir eru eftir Snorra Arinbjarnar („Slagsmál") og Þorvald Skúlason („Saumakona“).“ Þetta voru einu listamennirnir sem fengu hrós hjá Guðbrandi fyrir verk sín á sýning- unni. Hún var annars „Listvinafélag- inu og íslenskum listamönnum til há- borinnar háðungar. “ Hvað var að gerast? Þrír mikils- metnir listamenn fengu slæma útreið hjá Valtý en Guðbrandur hrósaði þremur yngri listamönnum. Hann taldi jafnframt þessa sýningu bera „eins og aðrar íslenskar sýningar vott um, að hugarflug og andríki íslenskra listamanna sé ekki mikið. Þeir mála landslög endalaust. Það er tamið auga og hagleikur, sem skapar myndir af því sem fyrir augun ber, en þeir sjá ekki neitt með innri sjón- um.“33 Smekkur sumra Islendinga eins og Guðbrands á myndlist var að taka breytingum. Sumir voru orðnir þreyttir á öllu þessu landslagi. Hið þjóðernislega myndmál höfðaði ekki lengur til allra. Með dofnandi þjóðernishyggju hurfu flestir hinna yngri listamanna frá list sem sótti efnivið sinn til „þjóðarverðmætanna". Þeir skipuðu sér í skýrar pólitískar fylkingar eins og margir aðrir á þessum tíma. Þá þrömmuðu margir íslenskir lista- menn í Kaupmannahöfn „í göngum í þyt rauðra fána og kröfuborða."34 Myndir þessara yngri listamanna sýndu oft erfiðisvinnufólk, þorps- götu og fleira sem sumum þótti ekki vert að setja á striga eða klappa í stein. Þeir beindu nú sjónum sínum að „manngerðu umhverfi og hvers- dagslegri athöfn fólks“35 en ekki bláma fjallanna. Nöfn þriggja verka sem þremenningarnir ungu áttu á sýningunni 1927, lýsa þessu ágætlega: „Við flatningsborðið", „Slagsmál“ og „Saumakona". Stíll expressjónismans tók jafnframt þessu að vinna á. Listamaðurinn var ekki bundinn af því að fylgja ákveð- inni fyrirmynd í verki sínu, heldur varð verkið nú túlkun hans á umhverf- inu. Hann gat því lagt meiri áherslu en áður á liti, form, efnisuppbyggingu og eigin tjáningu. Listaverkið varð til í 72 SAGNIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.