Sagnir - 01.06.1992, Page 85

Sagnir - 01.06.1992, Page 85
líka vaskur en snyrting með baði á ganginum.2 Spítalinn lét nemunum í té frítt fæði, húsnæði og vinnuföt og það auðveldaði mörgum að fara í námið. Búningurinn var bláröndóttur kjóll með stuttum ermum, hvítur, stífaður flibbi, hvít tvískipt svunta með mitt- isstreng og böndum yfir bakið. Laus- ar smellur voru notaðar til að festa þetta allt saman. Slörið var ferhyrnt, hvítt og sítt, náði í mittisstað. Það var fest í hnakka með öryggisnál en vildi stundum renna til.3 Það var víst öruggara að vakna nógu snemma fyrstu dagana til að klæða sig í slíkan búning! Að verða hjúkrunarkona Þegar í búninginn var komið hófst námið. Þuríður Jónsdóttir hætti í stjórnarráðinu af því henni fannst skrifstofuvinna leiðinleg og fór í hjúkr- unarnám rúmlega tvítug árið 1934. Hún hafði aldrei komið á sjúkradeild og fyrsti dagurinn senr hjúkrunarnema er henni minnisstæður: Það var snemma morguns. Hjúkr- unarkona tók á móti mér og fylgdi mér inn á ellefurúma karlastofu. „Þér skuluð byrja að búa um rúm- in hérna“, sagði hún og fór aftur fram. Ég stóð út við dyr eins og hver annar vesalingur og hugsaði hvað til bragðs skyldi taka. Átti ég að segja þeim að fara frainúr, eða hvað? Gamall maður í rúminu beint á móti dyrunum sá víst hvernig mér leið og sagði rólega: „Þær eru nú vanar að byrja á mér.“ Ég gekk til hans og hann sagði mér til, hvernig „þær“ væru vanar að hafa þetta.4 Þriggja ára hjúkrunarnám var hafíð Nemarnir kepptust við allan daginn, frá sjö að morgni til átta að kvöldi. Fyrir stofugang um morguninn varð að vera búið að búa unt öll rúm, þvo og snyrta sjúklinga, mæla þá og gefa þeim morgunmat og lyf. Á stofu- gangi raðaðist starfsfólkið í halarófu eftir tign og virðingu. Fyrstur fór yf- Kristín Thoroddsen, skólastjóri Hjúkrunar- skólans á árunum Í93Í-Í948. Þœr sem komu of seint á heimavistina á kvöldin þurftu að læðast fram hjá herbergi hennar á leiðinni í rúmið og vei þeirri sem staðin var að vcrki! irlæknirinn, síðan deildarhjúkrunar- konan, þá aðstoðarlæknir og hjúkr- unarkona en síðastur í röðinni var neminn. Að sjálfsögðu þéruðust allir. Eftir stofugang var hádegismatur, lyfjagjafir og sáraskiptingar. Að því loknu varð að hafa hraðan á að þurrka af borðum, hreinsa til á stof- um og sópa ganginn fyrir heimsókn- artínrann. Síðan var miðdegiskaffi. Og aftur voru mælingar, umbúnað- ur, lyf og þvottur fyrir kvöldmat klukkan sex. Auk þessa keyrðu og sóttu hjúkrunarnemar sjúklinga í rannsóknir og röntgenmyndatökur, þvoðu rúm og viðruðu dýnur, lögðu vatns- eða leðjubakstra á sjúklingana, hreinsuðu og suðu sprautur og önnur áhöld og töldu og flokkuðu óhreinan þvott úti á svölum, sem var kalt og ógeðslegt verk. Að sjálfsögðu svör- uðu þær líka öllum bjölluhringingum sjúklinga og reyndu að verða við óskum þeirra. Ábyrgð nemanna var sérstaklega mikil á næturvöktum en þá voru þær oft eini starfskrafturinn. Næturvaktir voru yfirleitt í 13 tíma en gátu farið upp í 16 tíma, yfirleitt var vakað 14 nætur í röð. Auk þess að sinna sjúkl- ingum á nóttunni áttu nemarnir að þvo og sjóða „hitt og þetta dót“, pússa borð og bekki á göngum, taka til á læknaherbergi og búa til umbúðir. Klukkan fimrn var byrjað að inæla og þvo þeim sem ekki gátu það sjálfir.3 Bóklega námið var samhliða vinnu á deildum og lesturinn varð þess vegna oft útundan því vinnudagurinn var 12 stundir. Að vísu var tveggja tíma hlé um miðjan daginn sem átti að nota til lesturs en oft féll bókin á gólfið - „við vorum svo þreyttar“. Það var lítil regla á fyrirlestrum en kallað í stúlkurnar úr vinnu og frí- tíma, jafnvel þótt þær hefðu verið á næturvakt nóttina áður.6 Á fyrsta ári var kennd hjúkrunarfræði, hjúkrun- arsiðfræði og líffæra- og lífeðlis- Landspítalinn nýbyggður. Heimavist hjúkrunarnemanna var á þriðju hæðinni. SAGNIR 83

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.