Sagnir - 01.06.1992, Síða 100
Unnendur Þórbergs Þórðarsonar finna hér
fróðlega og skemmtilega umfjöllun um meist-
arann, frá því Ofvitinn skilur við lesandann og
að því er Bréf til Láru birtisl. Árin 1912-24
voru mótunar- og umbrotaár í lífi Þórbergs og í
mörgu tilliti frjóasta tímabiliö á æviskeiði hans.
í bókinni segir frá þessu. Höfundurinn, Helgi
M. Sigurðsson, ritstýrði (1986-87) útgáfu á áð-
ur óbirtum ritsmíðum Þórbergs, og vakti hún
verðskuldaða athygli.
HIÐ ÍSLENZKA BOKMENNTAFELAG
SÍÐUMÚI.A 21, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 91-679060
Árbæjarsafn og starfsemi þess í 35 ár. 1957-
1992, er viðfangsefni þessa afmælisrits. Tuttugu
og tveir höfundar rita 25 greinar urn fjölþætta
starfsemi safnsins og ómetanlega fjársjóði,
muni og hús sem því tilheyra. Hátt á annað
hundrað mynda prýða bókina, sem allir Reyk-
víkingar og söguáhugamenn þurfa að eignast.
Öskjuhlíð
Náttúra og minjar
Að auki mun Árbæjarsafn gefa út í desember, í samvinnu við Borgarskipulag Reykjavíkur,
rit er nefnist Öskjuhlíð - náttúra og minjar. Þetta er 36 síðna rit, prentað í lit, og með mörg-
um myndum, í stóru broti. Það er ætlað útivistarfólki og öðrunr þeim er áhuga hafa á nátt-
úru og/eða sögulegum minjum í þessu stórkostlega útivistarsvæði Reykvíkinga.