Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Qupperneq 43

Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Qupperneq 43
BÓKMENNTIR 37 kippir nokkrum þeirra af, sem óður voru. Enda skiptir það mestu máli, hvernig leikið er, en tóntegundin minna. Og það er mikið fagn- aðarefni, að á hinni nýju bók Davíðs eru sannarlega engin ellimörk í skáldskapar- legu tilliti. Hún ber öll hin góðu gömlu ein- kenni hins klassíska Davíðs, sem fyrir löngu er orðinn, er og verður meðal hinna út- völdu í skáldmenntum íslenzku þjóðarinnar. I Ljóðum frá liðnu sumri eru efalaust nokk- ur þau kvæði, sem hljótt verður um, þegar stundir líða, eins og hverja aðra hnefafylli þeirrar gróðurmoldar, sem liggur við rætur hinna fegurstu jurta. En af slíkum gróðri er yndislega mikið í þessari bók, í henni eru mörg kvæði, sem eiga vísan samastað í úr- vali hins allra bezta meðal ljóða skáldsins. Unaðslega tært og hreint er kvæðið Hús- móðir, um hina góðu konu, sem er per- sónugerð hugsjón skáldsins um mannúð, kærleik, trúfesti og frið meðal jarðbyggja. í Ledu og svaninum er ástaskáldið gamla og góða í algleymingi, heitur og áfengur er fögnuður þessa kvæðis og sýnin svo skáld- leg sem bezt má hæfa þessu forna yrkisefni hinna mestu listamanna. Tregasárt er snilld- arkvæðið Sorg, þar sem list og fegurð rísa upp af harmi og þjáningu. Slíkt kallaði ann- að skáld bölva bætur, gjöf guðanna. I kvæð- inu Við Hreindýravatn er hið lýriska eitt um hituna, leikur í draumheimi, fyrir austan sól og sunnan mána, Hreindýravatn finnst víst ekki á neinu landabréfi. Og loks skal nefna Vornótt, þokkafullt og feyru- laust kvæði. Þar bregður meistarahöndin upp í fáum, hnitmiðuðum setningum svip- sýn þeirrar unaðsmyndar, þar sem landið sefur í faðmi vornæturinnar. Davíð Stefánsson er þjóðskáld og verður ekki í dilk dreginn eftir hreppapólitík. En heimilt er eigi að síður að minnast þess, að hann er jafnframt skáld Norðurlands öllum öðrum fremur, bæði fyrr og síðar. Átthag- arnir á Norðurlandi, sveitin og ættarböndin, allt er þetta í hjartablóði hans. Norðlenzk fjöll, hvít og blá, ber hátt í hinni nýju bók, föðurtúnin, heimahagarnir liía þar lífi hinna heilögu, minningar um fyrri menn svo sem Bólu-Hjálmar og Jón Arason, uppreisnar- menn og andans höfðingja í hreysi og á tignarstóli, sækja fram og magnast við hina ríku átthagakennd og átthagametnað skálds- ins. Hressileg er hin norðlenzka vitund í kvæðinu, sem kveðið er á rústum Skálholts- staðar. Og tryggðinni við upprunann er ekki þröngur stakkur skorinn. Skáldinu er tamt að tala máli landsbyggðarinnar andspænis borg og bý, alþýðunnar sem hefur skap og döngun til að takast á við náttúruna og sækja björg í greipar henni, andspænis hóg- lífum hitaveituborgurum, fomra þjóðlegra dyggða andspænis upplausn og rótleysi nú- tímans. Stundum hefur gætt beiskju í slíkum kvæðum Davíðs, og sumir menn hafa aðeins þótzt heyra þar nöldrandi rödd utan af íhalds- samri landsbyggð. En í Ljóðum frá liðnu sumri kennir ádeilu og áróðurs minna en oft áður í hinum mörgu og snjöllu kvæðum um náttúruna, fólkið og lífið úti á landinu, kvæðum, sem ort eru af fölskvalausri ást, ósvikinni tilfinningu, samhygð með efninu og metnaði fyrir hönd þess lands, fólks og þjóðfélagshátta, sem skáldið sjálft á rætur sínar í. Látum Suðurnes vera, en guðs- þakkavert er, að enn skuli heyrast þessi rödd norðan af Akureyri, þessi íslenzka rödd, þýð og karlmannleg í senn, þetta magnaða tungutak og tilþrifamikla kveðandi, sem engum hefur látið eins og Davíð frá Fagra- skógi. I ljóðum frá liðnu sumri er Davíð Stefáns- son það, sem við vildum að hann væri: hann sjálfur. I þessari bók er ekki uppgerð eða látalæti eða formstilraunir. Hún ber þess öll merki að vera upplifuð og heiðar- leg, maðurinn sjálfur eins og hann er, tal- andi frá sínum hjartarótum. Enginn vænti þess eða óskaði, að hér kæmi einhver nýr Davíð fram á sjónarsviðið. Stíll hans, fram- sögn og yrkisefni eru fyrir löngu komin í markaðan farveg, sem ekki flæðir út af í þessari nýju bók. Sú var tíðin, að Davíð fór fyrir fylkingum og fór mikinn. Þótt hann þeyti enn lúðurinn af miklum skörungsskap,

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.