Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Page 46

Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Page 46
40 HELGAFELL æðri. Honum er það fyllilega ljóst, hverjum takmörkum íslenzkar fornleifar eru háðar sem heimildir og að þær einar myndu gefa næsta einhæfa menningarmynd, en bregða samt skærara Ijósi yfir ýmislegt í okkar fornu menningu en fombókmenntirnar geta gert. Kristján hefði jafnvel mátt kveða enn sterkar að orði en hann gerir um gildi forn- minjanna sem mælikvarða á áreiðanleik hinna skráðu heimilda. Frásagnir þær úr heiðnum sið, er við eigum, eru þó ekki skráðar fyrr en mörgum mannsöldrum eftir að sá siður var aflagður. Sú staðreynd, að fornminjarnar staðfesta um margt þá mynd af þessu tímabili, sem við höfðum gert okkur úr fornbókmenntunum, gefur þessum minjum eigi minna gildi en þótt þær hefðu afsannað flest af því, er við áður höfðum fyrir satt. Því er og stundum haldið fram, og með nokkrum rétti, að fomminjarnar séu okkur ekki jafn þýðingarmiklar og þeim þjóðum, sem minna eiga skráð um sína fornu sögu, en með engu minni rétti má halda því fram, að fornbókmenntirnar auki gildi okkar fornminja. Minna virði væri okk- ur kista Páls biskups og líkamsleifar, ef ekk- ert hefði verið skráð um Oddaverja. Nafn doktorsritgerðar Kristjáns segir til um aðalefni hennar, þegar það er vitað, að kuml notar hann sem samheiti um leg- stað heiðins manns, hvort sem honum hefur verið haugur orpinn eður ei. Sjálft kumla- talið, þ.e. lýsing þeirra 246 kumla, sem fundizt hafa hérlendis á 123 fundarstöðum, er ásamt yfirlitskaflanum um umbúnað kumla uppistaða bókarinnar og nær helm- ingur hennar að lesmáli. Eðlilega er sjálft kumlatalið enginn skemmtilestur. Miklum mun skemmtilegri aflestrar mun flestum finnast sá hluti bókarinnar, er fjallar um haugfé, þ.e. alla þá gripi, er fundizt hafa í kumlum, og vera má, að ýmsum þyki al- skemmtilegastir þeir kaflar bókarinnar, sem hvorki fjalla um kuml né haugfé og eru því með nokkrum hætti utan við efnið, en eiga þó heima í þessari bók. Þar er m.a. fjallað um jafn forvitnilega og hugarflugseggjandi hluti og rómversku peningana þrjá, frá þriðju öld eftir Krists burð, er fundizt hafa á Austfjörðum, og fjalastúfana útskomu frá Flatatungu, frá 11. öld, einu hreinræktuðu leifar Hringaríkisstíls í tréskurði, sem varð- veitzt hafa í veröldinni til vorra daga. Þegar ég las fyrst um þessar fjalir í hinni ágætu ritgerð Kristjáns í Acta Archaeologica 1953, fannst mér að tvær væru þær syndir, sem einna erfiðast væri að fyrirgefa fslendingum 19. aldar, önnur sú verknaðarsynd að granda síðasta geirfuglinum, hin sú van- rækslusynd að bjarga eigi fleiri Flata- tungufjölum frá tortímingu meðan auðið var. Bók Kristjáns fjallar sem sé um sitthvað fleira en kuml og haugfé; og táknrænt er, að mynd sú, er prýðir kápu hennar, er af hlut, sem ekki telst til haugfjár, Þórslíkaninu fræga frá Eyrarlandi í Eyjafirði. En fáir les- endur hygg ég að harmi það, að höfundur hélt sér ekki betur við efnið, og sumir munu jafnvel óska þess, að hann hefði komið víðar við, m.a. vikið að fomum bæjarrústum, en einhvers staðar varð að setja efninu tak- mörk. Kristján getur þess í upphafi bókar sinn- ar, að henni sé ætlað að þjóna tvennu markmiði, að vera strangfræðilegt heimild- arrit fomfræðinga, útlendra eigi síður en íslenzkra, um íslenzkar víkingaaldarminjar, og samtímis að vera fróðleikslestur almenn- um íslenzkum lesendum án sérþekkingar í fornleifafræði. Líklega er ómögulegt að sam- ræma þessi markmið svo að fullvel sé, og gegnir þó furðu, hve langt höfundurinn hef- ur komizt í því efni. Nýtur hann þar þess m. a., að hann er einn hinn ágætasti essayisti, er við eigum, og getur skrifað læsilega og skemmtilega án þess að slá af um ná- kvæmni og vísindabrag. Hann afsannar þá kenningu, að doktorsritgerðir séu, eða jafn- vel eigi að vera, strembnar aflestrar. Það er ekki á mínu færi að gagnrýna vísindarlegar niðurstöður höfundar, enda virðist mér hann yfirleitt svo grandvar og gætinn í öllum ályktunum, að hann muni gefa fáa höggstaði á sér. Fremur treysti ég

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.