Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Side 48

Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Side 48
42 HELGAFELL nafnar þeirra á okkar dögum. Þá geri ég mér vonir um — karlægur, verði ég ekki kominn undir græna torfu — að geta ein- hversstaðar lesið eftirfarandi orð: „Árið 1956 gerðust þau tíðindi markverð- ust í íslenzkri bókmenntasögu, að út kom fyrsta ljóðakver Jóhanns Hjálmarssonar, sem þá var 17 ára nemi í Hólaprenti. Fyrsta bók aldarinnar, sem bar svo sterk einkenni síns tíma, að þeir Egill Skallagrímsson, Jónas Hallgrímsson og Davíð Stefánsson hefðu ekk- ert kvæðanna getað ort." Ekki sé ég hvað fleira mun skráð um Jó- hann okkar Hjálmarsspn og síðari rit hins sextuga skálds, læt ég vera að spá um það hversu vel hann lætur þær vonir rætast, sem fyrsta bók hans vekur. Vík heldur ræðu minni aftur að þessu litla ljóðakveri hans, sem nú hefur legið, heldur umkomulítið, á búðardiskum nokkra vetrarmánuði. Ég skal segja það strax, að aldrei hef ég lesið frumsmíð skálds með meiri fögnuði, og ég sagði upphátt: Gott hjá strák . . . Svona eiga ungir menn að yrkja 1956. Hér er lifandi maður, sonur þess tíma sem er. Fyrst og fremst ungur maður, verðugur arftaki að tungu Egils, Jónasar og Davíðs, en ekki gam- almenni, sem japlar þá dúsu hugsunarlaust, sem uppí hann var stungið í vöggu. Og það var margt sem gladdi mig í þess- ari bók. Hún fullvissaði mig um það, að sú eyðimerkurganga, sem mín skálda- kynslóð hóf af andlegri nauðsyn, er ekkert feigðarflan, ungu mennirnir, sem á eftir okk- ur koma, munu sigra, ef okkur tekst það ekki sjálfum. Það hafa vissulega engir himnar hrunið við útkomu þessarar bókar. Fáir vissu fyrir- fram að hún myndi koma. Það buðu því engir í handritið og höfundur verður líklega orðinn myndugur, þegar útgáfukostnaðurinn er að fullu greiddur. Það hefur heldur ekki staðið í neinni auglýsingu að Aungull í tím- ann sé athyglisverð bók. En ég held að þeir fáu, sem lesa þetta kver með góðvild, hljóti að fagna því að bókin er komin og að höf- undur hennar skuli aðeins vera 17 ára. En þetta átti að vera stuttur ritdómur. Efn- isvalið er ungs manns. Fallega dregnar ljóð- myndir landslags og náttúru, undir niðri ugg- ur í huga spyrjandi pilts, börn að leik, fólk við vinnu: „Dagarnir koma hlaupandi út úr skóginum og drukkna í vatninu", „Ég heyri ekkert nema saung þagnarinnar, sé ekkert nema nábleikt andlit hennar", „Stúlka, sem heldur á visnuðum rósum", „Sólhvítir mávar Dimmblátt haf Laufgrænir bátar", „Hungur- fölar ásjónur", „starandi augu", „síþyrst börn", „dagur hinna þjáðu mun rísa". — Nei, svona má ég ekki halda áfram. Hér er eitt ljóð sem dæmi: A morgun Á morgun mun gleðin koma til mín og seigja: Vinur er ei harpa þín búin til saungs Og ég mun líta undrandi upp og svara: Nei hana hafa mennirnir brotið fyrir larmgu En þá munu geislar hennar leika um vánga minn og tár mín munu þoma og ég mun fagna henni og við munum svífa yfir löndin og reka vofurnar á flótta og fólkið mun koma hlaupandi útúr hreysunum til að bjóða okkur velkomin og auðmennirnir munu fyllast gleði og strá peningum sínum yfir fólkið og það mun tína þá upp en það mun ekki hirða þá nei það mun fleygja þeim í hylinn sem er svo kaldur að einginn getur kafað hann og við öll munum haldast í hendur og sýngja hinn nýja saung um hina ríku og snauðu hvítu svörtu og gulu sem fundu eftir mörg döpur ár að þau voru öll systkini. Ætli Jóhann Hjálmarsson geti ekki kinn- roðalaust lofað þessu kvæði að fljóta með, þegar eitthvert virðulegt bókaforlag gefur út „Ljóð aldarinnar" árið 2000? Það er ekki víst að þeir hafi allir betra að bjóða, sem nú þykja eiga nokkuð undir sér. J. ú. V.

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.