Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Síða 51

Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Síða 51
LISTIR 45 um vetri. Er orðið langt síðan tónleikar hafa verið betur sóttir í Reykjavík, enda var óper- an flutt sjö sinnum fyrir húsfylli áheyrenda og við forkunnargóðar viðtökur. Enski hljómsveitarstjórinn Warwick Braith- waite hafði veg og vanda af þessum tónleik um, en Ragnar Bjömsson söngstjóri hafði aðstoðað við undirbúning þeirra. Það duld- ist ekki, að stjórnandinn er þrautreyndur og veraldarvanur á sínu sviði, hófsamur og ná- kvæmur, en þó þeim anda gæddur, sem örf- aði alla þgtttakendur til fyllstu átaka. Þur- íður Pálsdóttir vann hér mikinn listsigur. Guðmunda Elíasdóttir kom nú fram í fyrsta skipti eftir nokkurra ára dvöl erlendis og leysti af hendi erfitt hlutverk með mikilli prýði. Magnús Jónsson hefir ekki í annan tíma sannað vetur glæsileik raddar sinnar og ágæta hæfileika. Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson sungu með öryggi og skör- ungsskap, sem vel hefði sómt sér á hvaða óperusviði sem er. Kórinn, skipaður söng- mönnum úr karlakórnum Fóstbræðrum, var ágætlega samstilltur og söngurinn mjög áferðarfagur. Hljómsveitin skilaði sínu veiga- mikla hlutverki óaðfinnanlega, og heildar- áhrif tónleikanna voru eftirminnileg. Það er dýrt og áhættusamt fyrirtæki að setja óperu á svið með öllum útbúnaði, sem þar til heyrir, ekki sízt í fámenninu. Enda hefir raunin orðið sú, síðan Þjóðleikhúsið tók til starfa og skilyrði sköpuðust til óperu- flutnings yfirleitt, að ein ópera á ári að með- altali hefir þótt allmikið stórræði. Erlendis er mjög algengt, að óperur séu fluttar eins og„ II Trovatore'' var að þessu sinni, án leik- tjalda og búninga, og þykir það góð tilbreyt- ing, þar sem óperulíf stendur með meiri blóma en hér er. En sérstök ástæða er til að fagna slíkri tilraun nú, þar sem svo fátt er á boðstólum af slíku tagi, og er þess að vænta að Sinfóníuhljómsveitin láti ekki hér staðar numið. Óperuflutningi, sem jafn vel er til vandað og var að þessu sinni, mun verða vel tekið, þótt á skorti um ytri búnað og íburð. R. J. | ■j.ij.i LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR átti sextugsafmæli snemma á árinu, og hafði í því tilefni sýningar á leikritinu Þrjár systur eftir Tsékov. Eg sá Þrjár systur tvisvar sinnum, og þegar eg heyrði auglýst að sýna ætti þær í síðasta sinn, fann eg að mig lang- aði til að sjá þær einu sinni enn. Nú var það svo, að þótt þessi sýning á Systrunum væri að ýmsu leyti góð, bar hún ekki svo af, að það væri næg ástæða til að leggja leið sína í Iðnó aftur og aftur. Eg varð því að finna aðra ástæðu fyrir þessari löngun minni, og það þurfti heldur ekki lengi að leita; leikritið sjálft ber sem sé svo mjög af því sem hér er venjulega að sjá, að fyrir leikhúsgestinn er það álíka, og svaladrykk- ur fyrir eyðimerkurfara. Það má sjálfsagt deila um það til eilífðar- nóns, hvað hafa beri í huga, þegar ákveðið er, hvort leikrit skuli tekið til sýningar eða ekki. I því sambandi langar mig að þessu sinni til að minnast á eitt atriði aðeins. Þess sést oft getið í þeim fréttatilkynningum, sem leikhúsin gefa út í sambandi við leikrit, sem þau ætla að fara að sýna, að leikrit þessi hafi verið sýnd mörg hundruð sinnum í London, New York eða höfuðborgum Norð- urlanda, eða í þessum borgum öllum. Vissu- lega gefur þetta nokkrar upplýsingar um leikritin, en ég fullyrði, að þær upplýsingar eru harla lítils virði þegar ákveða á hvort leikritið skuli tekið til sýningar hér eða ekki. Leikhús stórborganna eru flest rekin sem gróðafyrirtæki, og því leggja þau mesta áherzlu á að ná í þau leikrit sem brezkir nefna „potboilers”, þ.e. þau sem eru líkleg til að gefa álitlegan hagnað. En slíkt sjónarmið má ekki ráða nema að mjög litlu leyti hjá leikhúsunum hér. Vitanlega þurfa þau líka sína „potboilers", enginn hefur neitt á móti því, og enginn vill að þau séu algerlega rekin með styrk af almannafé. En þegar tekin eru til meðferðar leikrit, sem ekki er hægt að búast við, að mikil aðsókn verði að, þá þurfa þau að athuga sinn gang. Þá verður að gera kröfu til þess, að þau velji sér leik- rit eins og Þrjár systur.

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.