Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Síða 8

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Síða 8
íslenzk alþýða eigi fyrir höndum að vera andlegur tjóðurþrœll öfga- fullra yfirgangsmanna, er nota sér skoðanaþcegð hennar og undir- gefni, til þess að skara eld að sinni köku, án tillits til annars en þess, sem þeim finnst sjálfum œskilegast. Rúm rits þessa verður notað til að flytja rökstuddar grein- ar um stjórnmál og félagsmál, þar sem hœgt er að gera efninu stórum fyllri skil en í blaðagreinum. Það mun verða reynt að leiða athyglina að rökum og staðreyndum. Það mun verða reynt að hjálpa mönnum til að iliuga málin, svo að þeim reynist siðan auðveldara að mynda sér sinar eigin skoðanir. Nafni ritsins er œtlaö að gefa hugmynd um tilgang þess. Hann er ekki aðeins sá, að rœða þau mal, sem efst eru á dagskrá, heldur einnig að fá ný mál tekin á dagskrá hjá þjóðinni, sem henni eru talin nauðsy?ileg. Þá mun og verða leitazt við að kynna þcer þjóð- félagsumbœtur og nýjungar, sem efst eru á dagskrá hjá öðr- um þjóðum, og mœttu vera íslendingúm til lœrdóms á einn eða annan hátt. Margt bendir til þess, að i nágrannalöndunum séu stórfelldar þjóðfélagsbreytingar i sköpun, sem hljóti og eigi að ná til okkar, því að þar muni að finna hinn heppilegasta meðalveg milli öfga samkeppnisstefnunnar og kommúnismans. Munu að jafn- aði birtast tvœr eða fleiri greinar um þessi efm í hverju hefti. Meöal annarra þjóða er til margt tímarita, sem flytja rökrœður um þjóðfélagsmál. Slíkt tímarit vantar hér alveg. Ýmsir hafa talið, aö eigi tjáði að gera slika tilraun hér, því að menn vildu ekki lesa nema stuttar og auðmeltar greinar um þessi mál. Sé þetta satt, er hugsunarhœtti þjóðarinnar illa komið, og lýðrœði hennar á sandi byggt. Þessu verður heldur ekki trúað að óreyndu, heldur verður því treyst, að þessi tilraun einmitt. sýni það, að almenningi hafi hér verið gerðar rangar getsakir. Að öðru leyti þykir ekki rétt að orðlengja öllu meira um rit þetta, þegar það fer úr hlaði. Aðstaða þess til þjóðjélagsmálanna mun skýrast bezt í greinum þeim, er það flytur. Það mun vinna gegn öfgum og yfirgangi, þar sem slíku er að mœta. Það mun vinna að þvi, að þjóðin velji sér veg hollra umbóta og heilbrigðar samvinnu. Það mun þó eigi leitast við að telja þjóðinni trú um, að hún eignist gull og grœna skóga, ef hún aðeins fylgir vissum stefnum eða mönnum. Þjóðin verður að talca á fyllsta dugnaði sínum, skipulagsgáfum og framsýni, ef hún á að reynast vaxin þeim margvíslegu verkefnum, er lausnar krefjast, jafnvel þótt að fylgt sé réttri stefnu og sjónarmiðum. Jafnframt og hver einstaklingur á að gera þá kröfu til þjóðfélagsins, að hlutur hans sé ekki fyrir borð borinn, verður hann að gera þá kröfu til sjálfs sín, að hlutur hans liggi ekki eftir í viðreisnarstarfi því, er þjóðin á fyrir höndum. Réttur og skyldur verða að haldast í hendur. Annars er háski vís.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.