Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 10

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 10
4 DAGSKRÁ Þjóðólfur var „örðugur" í skapi, þegar því bauð við að horfa og ekki þótti hann mikill vitsmunamaður vera. Hann var yfrið mótfallinn öllum nýbreytingum, og fylgdi feðra sinna siðvenju í öll- um sínum háttum. Hann var auðugur af fé, en nokkuð ásjáll; hvað svo mikið að starfsemi hans, að hann þyrmdi hvorki sér né öðrum.“ Önundur var „hinn mesti oflátungur og sundurgerðarmaður í klæðum og öllu viðmóti, velgáfaður, en ærið fljótfær í dómum sínum. Hann hafði frá barnæsku uppalizt í og í grend við Reykja- vik, og hafði þar numið marga hleypidóma á meðal hverra sá var hinn lakasti, að hann fyrirleit sína eigin þjóð, og gaf útlensk- um aleina heiðurinn; hann hélt líka að allir útlenzkir siðir og bjargræðisvegir gætu strax innleiðst á íslandi. Hann var mjög dönskuskotinn í tali sínu og þóttist mikið af því, en sveitamenn áttu bágt með að skilja hann“. Þessir þremenningar urðu samferða á Þingvöll og hófu tal sam- an um landsins gagn og nauðsynjar. Kom þá fljótt í ljós, að sitt svndist hverjum. „Ekki finnst mér behaganligt í þessu hrauni“, segir Önundur, „þá er það skemmtilegra í Reykjavík, þar er maður nær tóbaki, brenni- víni og kaffi, sem opmuntrar sinnið. Ekki skil ég heldur, að fyrri tíðirnar hafi verið betri en þessar, þá voru engir kaupstaðir til og ekkert af þeim hressingarmeðulum, sem ég nefndi; en þessar tíðir kynnu að blífa langt betri, ef menn vildu hætta þessu gamla slendriani og begynda með að leggja sig eftir akuryrkju, skóga- plöntum, kaffi- og tóbaksplöntum, fabrikvæseni og fleiru, sem hjá útlendum tíðkast“. „Ég vil engar nýbreytingar hafa“, svarar Þjóðólfur, „þær hafa oftar orðið oss að illu en góðu; ég hef heldur engan tíma til að vera að pæla upp alla jörðina og hlaða endalausa garða. Þeir ruddú sig líka hérna um árið, þegar þeir reistu klæðamylnu á Suðurlandi, en hvernig fór? Hún valt á höfuðið með öllu saman Aðra ætluðu Norðlendingar að reisa, en hún komst aldrei á topp- inn, og þeir, sem lögðu peninga til, fengu lítið eða ekkert aftur“. „Satt er það, Þjóðólfur minn,“, segir Sighvatur, „að margar breytingar hafa oss til óhamingju orðið. Samt getur það ekki orðið oss að tjóni, þó við gerum smávegis tilraunir með það, hvort korn eða tré geta vaxið í landi voru....Hvað því viðvíkur að þú, Önundur minn, vilt láta okkur taka upp ýmsar nýjungar, er

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.