Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Qupperneq 15

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Qupperneq 15
DAGSKRÁ 9 skapast misvöxtur og sveiflur, sem eru orsakir hinna svonefndu kreppa. Það getur ekki dreift kaupgetunni almennt og jafnt, en almenn kaupgeta er undirstaða þess, að atvinnuvegirnir fái nægan markað fyrir afurðir sínar. Þvert á móti vinnur það gegn jöfn- un kaupgetunnar á þann hátt, að nokkrir menn safna miklum auði með þeim afleiðingum, að kaupgeta margfallt fleiri manna verður minni en ella. Þá má nefna það, að þegar erfiðleikar fara í hönd, vilja einkafyrirtækin vitanlega ekki hætta fjármagni sínu, draga heldur saman seglin og auka þannig atvinnuleysið. Þá er komið að stefnu byltingarmannanna. Það má kannske segja, að Rússum hafi tekizt með ríkisrekstrarskipulaginu að veita öllum atvinnu og viðurværi. En þetta hefur þeim tekizt með því að svipta einstaklinginn öllu persónufrelsi. Einstaklingurinn í Rússlandi verður að vinna þar, sem ríkið segir honum að vinna, fyrir það kaup, sem ríkið ákveður honum, og undir þeim skilyrð- um, sem ríkið ákveður. Hann hefur heldur ekki rétt til að koma skoðunum sínum á framfæri, má ekki efna til funda eða félags- skapar um þær eða birta þær á prenti, ef þær eru andstæðar stjórninni. Hann getur heldur ekki ráðið því, hverjir fara með stjórnina, því að kosningarétturinn, sem stjórnarskrá Sovétríkj- anna veitir honum, er harla lítilsvirði, þar sem aðeins Kommún- istaflokkurinn eða félög, sem hann ræður yfir, getur tilnefnt frambjóðendur. Það liggur líka fullkomlega í augum uppi, að alger ríkisrekstur get- ur ekki þrifist þar sem lýðræði er ríkjandi. Það hljóta alltaf mjög margir að vera andvígir algerri ríkiseign og ríkisrekstri og með því að ala á óánægju, sem risið getur af ýmsum ástæðum, verð- skulduðum og óverðskulduðum, gæti þeim vel tekizt að ná meiri- hlutanum. Öflug samtök slíkra manna gætu líka torveldað mjög allar framkvæmdir, þótt þeir væru ekki í meirahluta. Jafn stór- felldum umskiptum og þeim, sem fylgja algerum ríkisrekstri, verður ekki komið á, í skyndingu, nema með harðstjórn, og ekki viðhaldið, nema með harðstjórn. Þetta viðurkenna líka þingræðis- sósíalistar, því að þeir telja að sósíalismanum verði ekki komið á, nema á löngum tíma og eftir að búið er að vinna honum öflugt . meirahlutafylgi. Þar sem þeir hafa komizt til valda, t. d. á Norðurlöndum, Ástralíu og Nýja-Sjálandi, hafa þeir heldur ekkert reynt til að framkvæma hina sósíalistisku stefnu sína.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.