Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 31

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 31
dagskrá 25 ekki fyrst og fremst á móti i- hlutun ríkisvaldsins. Roosevelt forseti orðaði þetta einu sinni svo, að „þeir sömu menn, sem vilja ekki, að ríkisvaldið skipii sér af atvinnulífinu, verða oft fyrstir til að heimta verndar- tolla af stjórninni" (F. D. Roose- velt, Looking Forward). Á þeirn timum, er járnbrautirnar voru byggðar (en það voru fyrstu framkvæmdirnar, sem kröfðust fiárframlaga og festingar fjár á ftrjög stóran mælikvarða), varð ríkisvaldið að láta til sín taka í fyrsta skipti til þess að tryggja járnbrautarfélögin gegn duttl- ungum einstaklinga og til þess að vernda einstaklingana gegn °f háum gjöldum. Einnig hafa öll nútímaríki orðið að hlutast til um atvinnudeilur, fyrst t.il Þess að vernda atvinnurekendur Segn verklýðsfélögum og siðar i því skyni að vernda réttindi verklýðsfélaga. Ef við viljum öðlast rétta mynd af þjóðfélagi nútímans, megum við ekki hugsa okkur einstaklinga, sem ýmist vinni saman eða keppi innan þeirra takmarka, sem ríkið setur, heldur verða menn a» hafa í huga fáein stór og voldug samtök, sem ýmist eiga 1 keppni sín á milli eða vinna saman í samræmi við hagsmuni hinna einstöku hópa, og ríkis- A ald, sem stöðugt verður að auka valdssvið sitt til að koma í veg fyrir, að þjóðfélagsbyggingin Iiðist í sundur. Við. getum ekki lcngur miðað við einangraða, ó- samtaka einstaklinga, eins og klassisku hagfræðingarnir gerðu. Viðfangsefni hagfræö- innar nú á tímum er maðurinn í samfélagi, maðurinn sem liður í félagssamtökum, sem heyja stöðuga baráttu um völdin. Deilan stendur ekki lengur um einstaklingsframtak eða félags- rekstur. Deilan er um það, hvoit það eigi að láta félagslegar fram- kvæmdir vera komnar undir til- viljunarúrslitum baráttunnar milli hagsmunahópanna eöa hvort eigi að stýra og samræma starfsemi þessara hópa til hags- bóta fyrir þjóðarheildina. Auður og velferð Klassisku hagfræðingarnir gengu út frá því sem sjálfsögð- um sannindum, að svo væri bezt séð íyrir velferð þjóðfélagsins, að framleiðslan væri sem mest. Það var álitið, að með því að hver hugsaði fyrst og fremst um eigin hag, væri hag heildarinn- ar bezt borgið. Gróðavoninni var þannig beitt fyrir vagn heildarinnar. í fyrsta skipti í veraldarsögunni var gróði ein- staklingsins álitinn mælikvarði á, hvað nytsamt væri fyrir þjóð- félagsheildina.

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.