Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 9
FormálsorS
t vetur sem leið sendu útgefandi og ritstjóri Árbókar allmörgum ung-
um höfundum bréf, þar sem þess var farið á leit, að þeir létu Árbók
í té ritgerðir um vinnubrögð sín og listræn áhugamál. Jafnframt
mæltumst við til þess að höfundarnir gerðu grein f.vrir skoðun sinni
á íslenzkri nútímaritlist yfirleitt, stefnu hennar og þróun. Um til-
gang ritgerðasafns þessa segir ennfremur orðrétt í bréfi okkar:
„Með þessu ritgerðasafni væntum við þess að fá megi nokkurt
yfirlit um eðli og markmið hinnar yngstu ritlistar liér á landi og
auka skilning manna á viðleitni ungra höfunda til að ryðja sér
nýjar brautir. Það er skoðun okkar, að tómlæti það, sem alþýða
manna sýnir alltof oft verkum lúnna yngri höfunda, sé miklu fremur
sprottið af efasemdum um tilgang þeirra og einlægni, heldur en
andúð á verkum þeirra og þess vegna hljóti að vera mikils virði,
að ungir höfundar tali öðru hverju beint og opinskátt til lesendanna
um vinnubrögð sín og afstöðu til listarinnar.“
Upphaflega var til þess ætlazt, að Árbókin kæmi út allmiklu fyrr
og væri þá kennd við 1957, en af ýmsum orsökum hefir útgáfa
hennar dregizt. Ritgerðirnar munu og allar vera samdar á þessu
ári, 1958.
Þess ber að geta, að uokkur hluti upplags Árbókar verður, eins
og síðast, fylgirit með Nýju Helgafelli og að þessu sinni er það heft
með öðru licfti þriðja árgaugs.
Að svo mæltu þökkum við höfundum Árbókar vinsamlcgt sam-
starf.
Ragnar Jónssoji Kristján Karlsson