Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 26

Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 26
Jóhannes Helgi: Bref um grundvallaratriöi Ég hef ritsmíð mína á því að lýsa yfir vantrú minni á því að þessi bók, þótt þörf sé, brevti nokkru um áhugaleysi manna eða neikvæðu við- horfi í garð ungra lista á Tslandi. Þeir fordómar, lífsvenjur og skoðanir scm menn hafa tileinkað sér um og eftir tvítugt fylgir þeim flestum eins og skuggi æviskeiðið á enda, en ég trúi hinu, að þótt menn séu vegna fátæktar eða fábreyttra uppeldishátta í æsku frábitnir list, einhverri grein hennar eða flestum, þá geti þeir engu að síður viðurkennt hana sem holla lífsnautn og áhrifaríkt uppeldistæki. En nútímalistir og áhugaleysi vel- flestra á henni, skólamál og ýmsir aðrir þættir menningarlífsins, allt eru þetta greinar á einum og sarna stofni og nærast af sömu rót — og það er hún sem hefur verið vanrækt. Ég fjalla þess vegna um viðfangsefnið með nokkuð öðrurn hætti og á breiðari grundvelli en tilmæli Helgafells gefa máske tilefni til og bið vel- virðingar lesenda á þeim vinnubrögðum mínum. Oðrum höfundum bókar- innar, sem eru mér slyngari í fræðilegri hlið bókmennta, tekst vonandi að sannfæra einhverja lesendur um að þótt við séum slæmir, séum við þó ekki alveg eins miklir og forhertir loddarar og af er látið. En má ég nú rétt spretta fingri að einu atriði, það er hve skelfileg fyrirbæri maðurinn og heimurinn væru án listar: Enginn fagur gripur, engin híbýlaprýði, engin tónlist, skáldskapur né söngur .. . Eg geng út frá því sem vísu, að allir séu sammála um, að ekki væri lifandi í heiminum án þeirra eiginleika mannsins sem list og skyn á fegurð sprettur af. Og af því leiðir óumdeilanlega: Þeim mun meiri rækt sem lögð er við að sjá hinum verðandi manni fyrir hagnýtri þekkingu til að af'la sér lífsviðurværis og um feið efla skyn hans á þau lífsverðmæti sem honum og þjóðfélaginu eru hollust, fegurð og list hverju nafni sem hún nefnist og hvaðan sem hún er ættuð, þeim mun fyllra verður líf hans. Og það er ekki einungis siðræn skylda, heldur vafalaust vilji lang- flestra foreldra að gera börn sín um þessa tvo hluti svo vel úr garði sem frekast er kostur. Sama skylda hvílir á ríkisvaldinu gagnvart þegnunum auk þeirrar skyldu að efla þá krafta sem vígt hafa sig þeirri þjónustu við mannfélagið að túlka gömul menningarverðmæti og skapa ný. Þetta er grundvallaratriði sem er haíið yfir allan ágreining, sjálfur grundvöllur tilveru okkar. það sem gefur lífi mannsins tilgang, fyllingu og lit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Árbók skálda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.