Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 45

Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 45
43 eru þær í sjálfu sér svo þungar? Að sjálfsögðu tökum við brot af reynslu okkar, sem virðast merkingarlaus öðrum. En þau eru tákn, sem við beit- um, tákn, sem við ögrum lesendum með. Táknin, sem tíðkuðust fyrir þrem áratugum, eru nú orðin vanabundin, svo sem rifið dagblað, sem sunnu- dagsgolan feykir eftir auðum strætum í kvikmyndum, eða þá tunglskinið, sem glitrar í flöskubrotinu, eins og Tsékoff sagði forðum. Allir hugsandi höfundar verða að velja sér tjáningarform og tákn við eigin hæfi. Oft hevrist það sagt, að tilraunir okkar í bókmenntum hafi engan rétt til birtingar. En þær verða að birtast og lesast, skáldið er engu síður háð lesendmn en þeir honum. Ef til vill munum við iðrast tilrauna okkar eftir þrjátíu ár, en ef við birtum þær núna, er víst, að við verðum ekki höfundar að þrjátíu árum liðnum. En hvers vegna erum við skáld? Hverju hlutverki gegnum við sem skáld? Slíkum spurningum verður hvert skáld að svara sjálfum sér. Eg er þess mjög vel vitandi, að prent freistar mín og heillar og getur orkað óþægilega mikið á hégómagirnd mína. Birting verks hættir til að verða lokatakmark í sjálfu sér, en ekki leið að marki, við ritum stundum til þess að sjá nöfn okkar á prenti. Þessi sjálfbirtingar- hneigð býr í öllum mönnum, þótt hún komi fram á mismunandi vegu, og það væri heimskulegt að dylja sjálfan sig þess, hve mikinn þátt hún á ritstörfum manna. En þetta er einungis einn þáttur af mörgum, og hann er vitanlega harðla smávægilegur hjá því erfiði, sem skáldið leggur á sig. Að minni hyggju hefur skáldið félagslegar skyldur að bera. Ég á þar ekki við félagslegan tilgang einvörðungu, því að slíkt er áróður, sem listamenn þurfa ekki að stunda. En engar bókmenntir eru óháðar mann- legu lífi, þær hljóta að bera þess merki, hvar og hvenær þær voru gerðar. Mesta hættan, sem steðjar að nútímaþjóðfélagi, er tortíming mannlegra verðmæta. Heimurinn er smám saman að verða svo gerður, að einstaklingar kafna undir risavöxnum stofnunum, kerfin eru að gleypa manninn, sem hefur skapað þau. Þið þurfum ekki einungis að hyggja að stjórnmálaflokk- um og jötunstórum atvinnufyrirtækjum til að skilja þetta; menn eru þvingaðir til að hugsa um fyrirbæri, sem þeim eru ofvaxin að stærð og gerð, og verða að lifa lífi sínu í samræmi við kerfi, sem skeytir litlu um persónuleg verðmæti. Bókmenntir einar sér orka til að kippa þessu í lag. En höfundar geta ekki komizt hjá að kanna þetta og skapa önnur verðmæti, sem betur þola aðbúð núverandi skipulags. Höfundar geta að minnsta kosti seinkað upplausn menningarinnar, og ef þá brestur getu til þess, þá geta þeir að minnsta kosti líknað þeirri menningu og hjúkrað, sem á svo skammt eftir ólifað. Eg er ekki einungis að hugsa um sjálfsmorð siðmenningarinnar með vetnissprengjum. Hitt vakir einnig fyrir mér, að umburðarlyndi heims- ins virðist hafa hrakað svo mikið, að gagnrýni einstaklinga á heiminum er oft talin vera siðferðilegur glæpur. Þetta hljómar víst allt fremur hátíðlega, en svo var ekki ætlan mín. Bókmenntir eru ekki einungis til að vola og væla. Og bókmenntir þurfa ekki nauðsynlega að vera alvarlegar. þótt þær séu sprottnar af alvarlegum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Árbók skálda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.