Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 34

Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 34
32 helzt vildu heyra, gerzt hundtryggur fylgismaður einhvers stjórnmála- flokks og verið svo elskulegur og Ijúfur og hjólliðugur í umgengni við valdamenn þar sem ég hefði rekist á þá, að urn mig yrði hugsað: anzi viðkunnanleg’ur maður. Eg skyldi hafa otað mér og potað, prílað og brölt upp metorðastigann og falið ómerkilegan hugsunarhátt bak við gleitt bros eða fjörlegt fas. Og þegar ég liefði verið búinn að fá samböndin og stöðurnar, þá hefði ég fvrst fyrir alvöru byrjað að þefa uppi livern þann bitling og sjóð sem ég gæti hirt laun úr, svona mikið hérna og svona nrikið þarna. Litlu sjóðina hefði ég litið hýru auga í laumi, en fnæst eins og graðhestur yfir þeim stóru. I erlenda virðingarmenn skyldi ég hafa pumpað dýrum vínum þangað til þeir hefðu staðið á blístri — og ég hefði fengið orður að launum. Ahrifalausa menn hefði ég varla virt viðlits, rétt snert fína hattbarðið, en til að sýna röggsemi í þeim stofn- unum sem ég hefði veitt forstöðu skyldi ég hafa staðið í málaferlum eða a. m.k. illdeilum við hvern mann stofnananna, allt frá skrifstofustjórun- um og niður í sendisveinanna. Og ég hel'ði gætt þess að aðhafast eitthvað til að fá á mig orð sem athafnamaður. Heldur en að gera ekkert skyldi ég hafa farið á hundavaði yfir plögg og skjöl og tekið kolvitlausar ákvarðanir og gefið sjóðvitlausar fyrirskipanir og fengið mér hundrað vítamínsprautur á ári, og þegar ég hefði byrjað að eldast skyldi ég hafa látið dæla inn í mig í stríðum straumum kynhormónum úr öpum og alls kyns kvikindum. Og í fullri vissu um annað líf skyldi ég hafa dáið sæll og glaður í silki- náttfötum og með orðuglingrið á bringunni og blikandi virðingamerkin hefðu verið það síðasta sem ég hefði séð áður en ég hefði sokkið í blóma- hafið, helzt á vkkar kostnað, og tíu þúsund pípuhöttum hefði verið lyft. Spéspegill! Það er rétt — en menn kannast við myndina. Og þessu lífsviðhorfi fleygir hratt fram og fleira sem blæs í seglin en nýfengnir og almennir möguleikar á líkamlegum munaði, bílar, skemmtanir, gling- ur . . . Staða mannsins í himingeymnum hefur farið hríðversnandi í seinni tíð og var þó hábölvuð fyrir, himingeimurinn orðinn sannanlega óendan- legur og ótakmarkaður og allt, maðurinn smækkað að sama skapi, er næstum ekki neitt í heimi sem enginn skilur hvað er og getur aldrei skilið nema ganga samstundis af vitinu, og á hrellda jörð fellur skugginn af yfir- vofandi vetnissprengju, frumkrafti sköpunarverksins beizluðum af mann- inum til djöfullegra verka. Mannkindin, dýrin, ílugurnar . . . 011 snældast þessi furðulega hjörð á skapnaði sem í mynd lítillar kúlu hnitar enda- laust hring utan um aðra hvítglóandi. Innst inni eru allir hræddir og á sífelldum flótta frá vitundinni um smæð sína og óttanum við myrk örlög og dauða — og leitin að lífstilgangi þrotlaus. Trúarbrögðin eru fæstum athvarf lengur. Enginn tilgangur sýnilegur annar en sá sem maðurinn setur sjálfur lífi sínu: skyldan við eigin kynslóð, þá næstu og landið. Og þeim tilgangi þjóna menn þegar bezt lætur, en varpa sér þegar verst lætur út í stjórnlausar nautnir, taumlausa auðsöfnun eða valda- fíkn í eiginhagsmunaskyni. En öll er hjörðin ofurseld starblindri tilviljun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Árbók skálda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.