Félagsbréf - 01.01.1958, Page 9

Félagsbréf - 01.01.1958, Page 9
! ! i ÞJÓÐBYLTINGIN í UNGVERJALANDI ein skýrasta og raunsæjasta heimlldin um dapurlegustu tíðindi mannkynssög- unnar á síðari árum. Bókin birtir atburði og málavexti í ljósi persónulegrar reynslu ungverskra manna, karla og kvenna. Þýðandi er Tómas Guðmundsson skáld, og ritar hann einnig merkan eftirmála. Bókin er seld til ágóða fyrir Ungverja- landssöfnun Rauða kross íslands. 158. bls. Verð til félagsmanna: ób. kr. 35.00; í bandi kr. 57.00. HIN NÝJA STÉTT — kommúnisminn skilgreindur. Það heyrist ekki mikið til fanga í klefa suður í Mið-Evrópu. Þó getur svo farið að raust hans hafi ófyrirsjáanleg áhrif um allan heim. Óhætt er að fullyrða, að engin bók frá síðasta ári hefur vakið þvílíka athygli sem hin Nýja stétt Djilasar. Hún er beiskur ávöxtur af dýrkeyptri reynslu kommúnistaforingja, sem komst til æðstu valda, en hafði hreinskilni til að viður- kenna, til hvilíks óefnis kommúnisminn leiðir í framkvæmd. Þýðendur eru þeir Magnús Þórðarson og Sigurður Líndal, og rita þeir eftir- mála um höfundinn og málaferlin gegn honum. 252 bls. Verð til félagsmanna: ób. kr. 38.00; í bandi kr. 60.00. FRELSIÐ EÐA DAUÐANN eftir Nikos Kazantzakis. Sagan lýsir baráttu Grikkja á Krít við tyrknesku kúgarana kringum 1890, tæp- um 10 árum áður en yfir lauk. „Þetta er bók, sem gott er að eiga, því maður les hana oft. Hún er ein þeirra bóka, sem lifa munu um langan ókominn aldur". (Kristmann Guðmundsson, í Morgunblaðinu). Sagan er spennandi aflestrar, persónulýsingar, eins og Mik- ales höfuðsmanns, frábærlega minnis- stæðar. Sagan er skáidskapur, þar sem efnið skiptir meira máli en formið. Þýðandi er Skúli Bjarkan. 476 bls. Verð til félagsmanna: ób. kr 80.00, rexinb. 97.00.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.