Félagsbréf - 01.01.1958, Page 40
30
FÉLAGSBRÉF
En liver 6veik hvern? Ó þú
sem myndar himinblá göng með þínum björtu augum
þaSansem öll þessi streymandi augu senda
örvar inní mig — — svaraðu! Hver
sveik livern? Hver hafði séð allt fyrir,
frá upphafi? Hver hafði lesið
í ljósi liugskots síns frá fyrsta degi
að himnaríki á jörðu verður jafnan
að endurlaufga garðinn í Eden
og bylting hvers dags að bregðast
í hjarta mannsins hvern dag?
Hver vafði
hvíslandi liöggorminum um tréð
og hengdi tnilli laufblaðanna glitrandi pyngjuna
og fjötraði vígtennurnar með guðlegu eitri?
Hver vissi,
að ég varð að svíkja sannleikann, og lét lvgina
sýna samileik sinn í niér?
Þessi liræsnisaugu sem beindust að þér
beinast nú að mér. Og þó, handan þessa heims
erum við einir, eilífar andstæður,
6núumst hvor á sínu sannleiks-skauti, þitt skaut
ósýnilegt ljós, en mitt
verður það sem maðurinn er. Við störum
yfir tvö þúsund ár og himnaríki og helvíti
í augu hvor annars.
SigurSur A. Magnússon þýddi.