Félagsbréf - 01.01.1958, Qupperneq 44

Félagsbréf - 01.01.1958, Qupperneq 44
34 FELAGSBREF því það eru trúræn rök fremur en trúarleg reynsla, sem hann hefur fjallað um síðustu árin. Hann er ekki gæddur hinni ástríðu- þungu trúartilfinningu Hopkins og Eliots. Trú hans er fremur vitræns eðlis: hann veltir fyrir sér hugtökum eins og „sekt“, ,,náð“, „verund“, „verðandi". Eliot og Dylan Thomas skrifa fyrst og fremst af tilfinningu, en hirða minna um rökin. Auden er bein andstæða þeirra og því stundum ósannfærandi sem trúar- skáld. Hann ferðast alltaf í heiðríkju skynseminnar, en skortir hið seiðmagnaða rökkur trúarlegrar dulúðar. Það hugtak, sem setja mætti að yfirskrift yfir allan skáld- skap Audens, er hugtak kærleikans, ástarinnar, í öllum sínum myndum. Hin holdlega ást og hinn andlegi guðdómlegi kærleik- ur — Eros og Agape. Hann leitast við að sameina hið holdlega og hið andlega, og Agape verður í rauninni lykillinn að skáld- skap hans: kærleikurinn sem umber allt og leitar ekki síns eigin. Auden er því í enn ríkará mæli en Eliot eitt af jákvæðum skáldum þessarar aldar. Yeats elskaði hins vegar engan nema sjálfan sig og skáldgyðjuna. Ekkert nútíðarskáld hefur gert kærleikann að höfuðinntaki og samnefnara skáldskapar síns í jafnríkum mæli og Auden. „Við verðum að elska hver annan eða deyja“ er kannski sú ljóðlína hans, sem bezt túlkar þetta viðhorf. Þróun Audens hefur legið frá félagslegri til persónulegrar lausnar á vanda mannsins. Þjóðfélagslegar umbætur kenna mönn- um ekki að elska; ríkisvaldið getur ekki þvingað menn til að elska; umbætur geta aðeins sprottið af kærleika, aldrei af hatri; hver maður verður að glæða með sjálfum sér hæfileikann til að elska, að öðrum kosti engar umbætur. Þrátt fyrir byltingarskoðanir í upphafi hefur Auden alla tíð verið sér meðvitandi um samhengi sögu og menningar og lagt mikla rækt við andlega forfeður sína. I reyndinni hefur hann skapað sér eins konar persónulega „goðafræði", þar sem hver þessara „forfeðra“ er tákn ákveðins viðhorfs eða eiginleika. Meðal þeirra eru menn eins og Melville, Henry James, Matthew Arnold, Voltaire, Freud, Ernst Toller og Edward Lear. Hefur hann ort mörg beztu kvæði sín um þessa og aðra andlega for-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.