Félagsbréf - 01.01.1958, Page 45

Félagsbréf - 01.01.1958, Page 45
FELAGSBREF 35 feður sína. Rilke hefur haft mikil áhrif á skáldskap Audens, en grunntónninn í ljóðum hins austurríska snillings var einmitt lofgerðin — „zu preisen". Þá ber og að nefna hinn norræna uppruna Audens (hann er af íslenzku kyni í föðurætt; Auden: Auðunn), en hans gætir mjög í ýmsum stílbrögðum hans. Hefur hann sótt innblástur í norrænan skáldskap, og mörg kvæði hans eru stuðluð að íslenzkri fyrirmynd. Það hefur verið sagt um Auden, að hann sé óstýrilátasta skáld sinnar kynslóðar, og má það til sanns vegar færa. Hann er Prótevs, hinn síbreytilegi og óútreiknanlegi fjöllistamaður, sem kann öll hlutverk og þekkir öll gervi. Hann hefur skrifað ferða- bækur í bundnu og óbundnu máli, samið leikrit, óperutexta og kvikmyndahandrit. Eitt þekktasta verk hans, „The Age of Anxi- ety“, sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 1948, hefur um langt skeið verið einn vinsælasti ballettinn á leiksviðum í New York. Þessi síðast nefndi Ijóðabálkur er gott dæmi um stílleikni Audens. Hann er skrifaður á hversdagsmáli stríðsáranna, en hefur hið fastmótaða form fornnorrænna kvæða og er stuðlaður samkvæmt ströngustu reglum. * * * Stephen Spender (f. 1909) er af þýzkum, enskum og gyðing- legum ættum. Faðir hans var kunnur blaðamaður. f bernsku hafði Spender mikinn áhuga á málaralist. 17 ára gamall vann hann fyrir sér með því að prenta flöskumiða fyrir lyfsala á eigin prentvél. Hann kom til Oxford 19 ára, en háskólanámið átti ekki við hann, svo að hann hvarf frá því um sinn og ferð- aðist um meginlandið. Kom síðan til Oxford aftur og lauk þar námi ánö 1931. Spender var aðeins 18 ára gamall, þegar hann prentaði og gaf út lítið Ijóðakver eftir sig, „Nine Experiments“. Tveim ár- um síðar kom „Tiventy Poems“, og var þá þegar Ijóst, að hér var komið skapheitt og hugmyndafrjótt skáld. En það var þriðja bók hans „Poems“ (1933), sem birti skáldið í fullum þroska. Hann var byltingarsinnaður í skoðunum og vakti víða gremju,

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.