Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 49
FELAGSBREF
39
raunir berjast um blaðsíðurnar. Síðustu ljóðabækur hans eru
ekki eins ferskar og myndríkar og fyrri verk hans, en hann á
það enn til að koma manni á óvart með ógleymanlegum ljóð-
línum, sem hitta beint í mark.
MacNeice hefur skrifað leikrit í bundnu máli, „Out of the
Picture“ (1937), sem er í senn
satíra og skemmtilega frumlegt
ævintýri. Hann kom með Auden
til íslands og samdi með hon-
um bókina „Letters from Ice-
land“ (1937), sem er bráðfynd-
in og glöggskyggn lýsing á
ferðalagi þeirra félaga um ís-
land, mestmegnis í bundnu máli.
MacNeice hefur ennfremur
skrifað ágæta bók um nútíma-
ljóðagerð og aðra um skáld-
skap W. B. Yeats.
* *
*
Eins og bent hefur verið á,
sneri Auden sér frá þjóðfélags-
randamálunum að einstaklingn-
um í fullri vitund þess, að hann hafði farið villur vegar þegar
hann hugðist lækna einstaklinginn með því að lagfæra þjóðfé-
lagið. Félagar hans komust líka að raun um, að þeir höfðu til-
beðið falsguð þar sem var kommúnisminn, kúgunin, þrælabúð-
irnar, hin algera fyrirlitning á manninum.
Ljóðagerð tók aftur nýja stefnu. Menn tóku að kafa inn í
sjálfa sig og afneituðu „veruleikanum", eins og hann hafði al-
mennt verið túlkaður. Nú átti tilfinningin að skipa hærra sess
en regla, form og hugsun. 1 stað hugsunar kom eðlisávísun, í
stað forms úthelling tilfinninganna, helzt ósjálfráð. Súrreal-
isminn varð tízka um sinn. William Empson var helzti formæl-
andi hans, en nokkur af eldri kvæðum Dylan Thomas bera einnig
keim af þessari stefnu. Súrrealistar héldu því fram, að marg-