Félagsbréf - 01.01.1958, Side 53

Félagsbréf - 01.01.1958, Side 53
FELAGSBREF 43 Formið er mjög flókið: þar er tjáð gleði og sorg bernskunnar, hin frumlega reynsla allra manna; gleði drengsins er tjáð í náttúrulýsingunni, og náttúran í lýsingunni á gleði drengsins yfir bernskunni: þetta er svo einkennilega samtvinnað, að mað- ur veit aldrei hvar náttúnmni sleppir og reynsla drengsins hefst. Líf skáldsins var óhamið eins og skáldskapur hans. Hann var viðurkenndur einhver mesti upplesari aldarinnar og vann sér geysilega hylli í Bandaríkjunum, þangað sem hann fór í marg- ar upplestrarferðir. Hann var kvæntur æskuvinkonu sinni frá Wales, og var líf þeirra í meira lagi stormasamt. Átti það ekki sízt rætur sínar að rekja til þess, að hvar sem Thomas fór, fleygðu konur sér að fótum honum. Hann drakk mikið, og fór sá löstur hans í vöxt ár frá ári. Hann var að hefja upplestrar- ferð um Bandaríkin, þegar hann lézt í New York haustið 1953. Ég var staddur í New York, þegar hann lézt. Vinur minn og kennari, William Troy, sat að drykkju með honum kvöldið, sem hann dó. Daginn eftir sagði hann við mig társtokknum aug- um: „Banamein Dylans var ekki ofdrykkja; það var skáldskapur".

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.