Félagsbréf - 01.01.1958, Side 59

Félagsbréf - 01.01.1958, Side 59
FELAGSBREF 49 hefur jafnan verið hér nokkuð um menn, sem hafa misstigið sig á hin- um mjóa og vandfarna vegi dyggð- arinnar, komizt undir mannahendur og hlotið lengri eða skemmri vist í fangahúsi. Orsakir hrösunarinnar eru eðlilega margar, og þar er oft að baki löng saga og dapurleg. Hinn löghlýðni borgari þekkir sjaldnast mikið til þessara ólánssömu manna, hann vorkennir þeim ef til vill, en reynir eftir getu að forðast þá, þegar þeir hafa afplánað dóm sinn. En mörgum verður eflaust á að velta fyrir sér, hvað búi innifyrir hjá þessum mönnum, hvernig þeim sé innanbrjósts, þegar þeir heyri kveðinn upp yfir sér margra mánaða eða ára fangelsisdóm, þeir sviptir æru og mannréttindum, og síðan inni- lokunin, frelsisskerðingin. Þeir menn, sem mestan möguleika hafa til að kynnast þessum afbrotamönnum á mesta niðurlægingartíma þeirra, eru gæzlumenn þeirra, fangaverðirnir. A síðastliðnu ári kom út bók eftir Sigurð Heiðdal, sem var forstjóri vinnuhælisins á Litla-Hrauni fyi'stu tíu árin, sem hælið starfaði (1929— 1939). í níu þáttum segir Sigurður frá kynnum sínum af föngum á Litla-Hrauni á þessu tímabili. Marg- ir munu hafa búizt við miklu af þess- ari bók. Höfundurinn var á yngri árum kunnur rithöfundur, sem nokk- urs mun hafa verið vænzt af, þó að minna yrði úr en efni virtust standa til. Hann hafði aðstöðu til að gjör- þekkja það efni, sem hann fjallaði um og hér var um að ræða nýstár- legt efni í íslenzkum bókmenntum og girnilegt til fróðleiks. En því miður verð ég að segja, að þessi bók olli mér miklum vonbrigð- um. Ýmsir af þáttunum eru nauða ómerkilegir, enda gefur efnið ekki tilefni til annars, og er vandséð hvaða erindi þeir eiga út á meðal almennings, nema þá til að sýna, hve snjall höfundur var að sjá við kenja- fullum og undirförulum föngum og til að auka blaðsíðutalið. Af slíkum þátt- um má nefna: „Ég læt ekki beygja mig“, um þrjózkan og kenjafullan fanga, „Ekki er allt sem sýnist“, um guðhræddan landabruggara, sem not- ar tímann á hælinu til að stela upp í tap það, sem hann hefur orðið fyrir vegna fangavistarinnar, en í bæði skiptin les forstjórinn þrjótana nið- ur í kjölinn og eyðileggur klækibrögð þeirra. Hið sama má raunar segja um þriðja þáttinn, „I tveimur vist- um“, um brennivínsberserk, sem held- ur að Litla-Hraun sé einhver sælu- staður, en rekur sig á hið gagn- stæða, að eigin dómi, við dvöl þar. Hinir sex þættirnir geta víst flokk- azt undir örlaga- eða lífsreynslu- sögur, en flestir eni þeir efnisrýrir og sviplitlir, langdregin og rislág samtöl eða eintöl, sem mér skilst að séu að mestu leyti uppdiktuð af höf- undi. Sá þátturinn, sem helzt var nokkurs af að vænta, Útlagi, er einn- ig hálfeyðilagður með mærð og til- finningasýki, reynt er að slá sig til riddara á því z.iiði í gömlum fá- tækralögum að svipta megi menn frelsi sökum fátæktar og sundra heimilum þeirra. Ekkert er gert til þess að skýra hinn dapurlega og dimma bakgrunn slíkrar lagasetningar, þeirra þjóð- félagsaðstæðna, sem kröfðust slíks,

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.