Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Síða 28
inni. Borgarstjóri ræddi einnig verkefnatilfærsluna
og breytingar þær, sem orðið hefðu á þróun ein-
stakra tekjustofna sveitarfélaga á seinustu árum.
Vakti hann m. a. athygli á því, að gildi fasteigna-
skatts í tekjuöflun sveitarfélaga hefur rýrnað frá ár-
inu 1972, er hann var færður til núverandi vegar.
I lok ávarps síns bauð borgarstjóri fulltrúaráðs-
mönnum og gestum fundarins til hádegisverðar í
Höfða.
Endurskoðun
sveitarstjórnarlaganna
Hallgrímur Dalberg, ráðuneytisstjóri og Magnús
E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri, höfðu síðan
framsögu um sveitarstjórnarlögin og endurskoðun
þeirra. Hallgrímur gerði grein fyrir sögu sveitar-
stjórnarlaganna, þróun sveitarstjórnarmála hér á
landi og þeim hugmyndum, sem uppi væru um
breytingar á skipan þeirra, en Magnús skýrði frá
helztu breytingum, sem orðið hefðu í þeim efnum í
Danmörku og í Noregi á seinustu árum.
Skýrsla stjórnar
og ársreikningar
Formaður sambandsins flutti fundinum skýrslu
um starf stjórnarinnar frá seinasta fulltrúaráðsfundi,
og framkvæmdastjóri gerði grein fyrir ársreikning-
um sambandsins og Sveitarstjórnarmála fyrir árið
1975 og fjárhagsáætlunum fyrir árið 1976. Var
hvoru tveggja vísað til fjárhagsnefndar fundarins og
síðan samþykkt.
Niðurstöðutölur á rekstrarreikningi sambandsins
árið 1975 voru kr. 22.254.646,- og Sveitarstjórnar-
mála kr. 4.139.559.-, en á efnahagsreikningi sam-
bandsins kr. 25.164.145.-. Á fjárhagsáætlun fyrir
árið 1976 er gert ráð fyrir, að tekjur og gjöld sam-
bandsins nemi 23 millj. króna og Sveitarstjórnar-
mála4.7 millj. króna.
Framsögumaður fjárhagsnefndar fundarins var
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri.
Kjarasamningar
Magnús Óskarsson, vinnumálastjóri Reykjavík-
226 urborgar, gerði fundinum grein fyrir gangi kjara-
samninga við starfsmenn sveitarfélaga og svaraði
síðan spurningum um meðferð þeirra mála. Varpaði
Magnús þeirri hugmynd fram, hvort ástæða þætti
til, að sveitarfélög, sem aðild ættu að kjarasamning-
um við starfsmannafélög sín, stofnuðu til samstarfs
sín á milli og mynduðu vinnumálasamband til þess
að annast gerð kjarasamninga af hálfu sveitarfélag-
anna og verða þeim til ráðuneytis um starfsmanna-
málefni.
Störf nefnda og
tilhögun fundarins
Að tillögu stjórnar sambandsins störfuðu á fund-
inum fjórar nefndir, verkaskiptingar- og tekju-
stofnanefnd, sveitarstjórnarlaganefnd, fjárhags- og
kjaramálanefnd og allsherjarnefnd. Allir fundar-
menn áttu sæti í einhverri þessara nefnda.
í lok fundarstarfa fyrri fundardaginn kvöddu sér
hljóðs Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri í Seltjarnar-
neskaupstað, og Stefán Jónsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, og gerðu að umtalsefni tilhögun
fundarins og umræðuefni hans.
Nefndir störfuðu síðari hluta fyrri fundardags og
fyrir hádegi hins síðari, en lögðu síðan fram niður-
stöður sínar eftir hádegi síðari fundardaginn.
Norræna sveitarstjórnarþingið
Af hálfu allsherjarnefndar fundarins hafði Logi
Kristjánsson, framsögu.
Hér fara á eftir þær ályktanir, sem fulltrúaráðið
gerði að tillögu nefndarinnar:
30. fundur fulltrúaráðs Sambands íslenzkra
sveitarfélaga haldinn í Reykjavík 12. og 13. apríl
1976 samþykkir, að sambandið bjóðist til að halda
norræna sveitarstjórnarþingið á Islandi 1977.
Álagningu skatta verði hraðað
Fulltrúaráðið beinir því til allra skattstjóra að
hraða sem mest athugun á skattframtölum, svo að
álagningu ljúki allsstaðar í júní. Forsenda þess er m.
a. sú, að löggjafarvaldið sé ekki með síðbúnar breyt-
ingar á skatta- og tekjustofnalögum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL