Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Side 46
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Vegagerð miði aö eflingu
atvinnu- og þjónustukjarna
Helztu niðurstöður umræðna undir kjöroröinu
„Fram á veginn“ á síðasta aðalfundi SSV
Á síðasta aðalfundi Samtaka
sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi (SSV), sem haldinn var í
Hótel Borgarnesi dagana 9. og 10.
nóvember 1990, var samþykkt að
kjósa fimm manna atvinnumála-
nefnd til að vinna að stefnumörkun
í atvinnumálum. í sömu ályktun var
ákveðið, að samtökin skuli stuöla
að ákvörðunartöku í vegamálum,
sem taki mið af möguleikum ein-
stakra svæða til að koma á fót at-
vinnu- og þjónustukjörnum.
Þá var samþykkt að efla emb-
ætti iðnráðgjafa með því að ráða
atvinnumálaráðgjafa í samstarfi
við héraðsnefndir, sveitarfélög og
aðila atvinnulífsins. Leitazt skal við
að velja starfsmönnum víðar stað
en í aðalstöðvunum og jafnframt,
að starfsmenn einstakra sveitarfé-
laga og héraðsnefnda veröi í
tengslum við embætti iðnráðgjafa.
Komið verði á formlegum sam-
skiptum embættis iðnráðgjafa við
Búvísindadeild á Hvanneyri, Sam-
vinnuháskólann í Bifröst, Búnaðar-
samtök Vesturlands og aöra þá
aðila, sem sinna ráðgjafarþjónustu
við atvinnulífið.
Loks skal atVinnumálanefnd
SSV stuðla að stofnun atvinnuþró-
unarnefnda á sambandssvæöinu.
í annarri ályktun fundarins um
atvinnumál var skorað á stjórnvöld
að gera átak í flutningi opinberra
stofnana út á land, eða verkefna
tengdum þeim, t.d. á sviöi fjar-
vinnslu. í því sambandi verði það
markmið sett, að nýjum stofnunum
eða ráðum verði komið á fót utan
höfuöborgarsvæðisins. Þá lagði
fundurinn áherzlu á, aö sveitarfé-
lögum eða samtökum þeirra verði
I vaxandi mæli falin stjórnsýslu-
verkefni, sem nú eru í umsjá ríkis-
ins. Lýsa samtökin sig reiðubúin til
þess að taka þátt í því verkefni að
kanna möguleika á og gera áætlun
um flutning verkefna samkvæmt
þessu markmiði.
Þetta voru helztu niðurstöður
aðalfundarins um meginefni hans,
sem var stefnumótun í atvinnu-
málastarfi sveitarfélaga á Vestur-
landi undir kjörorðunum „Fram á
veginn". Framsöguerindi um þetta
efni fluttu J. Ingimar Hansson,
verkfræðingur hjá Rekstrarstof-
unni, Jónas Guðmundsson, lektor
á Bifröst, Bjarni Guðmundsson,
kennari á Hvanneyri, Karl Sigur-
geirsson, verkefnisstjóri átaks-
MALMHUS
MOGULEIKARNIR ERU MARGIR
í MÁLMHÚSUM FRÁ MÁLMIÐJUNNI H.F.
Málmhús eru létt stálgrindarhús
boltuð saman á byggingarstað.
Allir stálbitar eru sérmótaðir og
galvaníseraðir.
Þessir völdu Málmhús:
Hjúpur hf., Flúðum, 12 x 36 metra.
Blikksm. Funi, Kópavogi, 12 x 20 metra.
Baldur Jónsson, Kópavogi, 12 x 20 metra.
í byggingu:
Nýja Bílasmiðjan hf., Mosfellsbæ, 16 x 30
metra.
Flugskýli, Breiðdal, 13 x 12 metra.
Upplýsingar hjá söluaðila og framleiðanda:
Málmiðjan hf., sími 680640.
Málmiðjan hf„ Skeifunni 7,108 Reykjavík, sími 680640 - telefax 680575.
108