Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 49

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Blaðsíða 49
SAMGÖNGUMÁL Hvalfjarðargöng Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi I. INNGANGUR 1. Sérstaða Hvalf jarbarganga Á síöustu árum hefur áhugi landsmanna fyrir hvers kyns jarö- göngum aukizt allverulega. Þessi áhugi er fyrst og fremst til kominn vegna Ólafsfjaröarganga og bein- ist aö jarðgöngum á Vestfjörðum, Austfjörðum og í Hvalfiröi. Hval- fjaröargöng hafa nokkra sérstööu, þar sem hugmyndir eru uppi um að ráðast i þá framkvæmd meö öörum hætti en áður hefur verið gert, þ.e. aö láta hlutafélag annast allar nauðsynlegar rannsóknir, afla fjár til verksins og innheimta veg- toll til þess að standa undir fjár- festingunni. í þessu skyni var hlutafélagið Spölur stofnaö. Hér á eftir fer samantekt um samgöngur um Hvalfjörö og um hlutverk Spal- ar hf. 2. Hvalfjarðarnefnd fyrsta Með bréfi í maí áriö 1967 skipaði þáverandi samgönguráðherra nefnd samkvæmt þingsályktun frá í apríl sama ár til þess „að annast alhliða rannsókn á því, hvernig hagkvæmast muni aö leysa sam- gönguþörfina milli þéttbýlisins í og við Reykjavík annars vegar og Akraness, Borgarfjarðar og til Vestur- og Noröurlands hins veg- ar.“ Nefndin skilaði áliti í septem- ber árið 1972, en Ijóst er, aö áður en nefndin var skipuö, höfðu sam- göngumál um Hvalfjörð verið í brennidepli um alllangt skeið. Hvalfjaröarnefndin, sem kalla má þá fyrstu, fjallaöi um ýmsar leiðir til þess að bæta samgöngur um fjörðinn, svo sem ferjurekstur, brúargerö og göng undir Hval- fjörð. Akraborg þjónaði þá, sem enn í dag, mikilvægu hlutverki í samgöngum Vesturlands við höf- uðborgarsvæðið, og var umfjöllun nefndarinnar í samræmi við það. Umfjöllun nefndarinnar um göng undir Hvalfjörð og brúargerð yfir fjörðinn var á hinn bóginn merkt sem hugleiðing, en þess verður að geta, að hugleiðing nefndarmanna er mjög nútímaleg, ef þannig má að orði komast, því þeirfjölluðu um allmörg þau sömu atriði og gangamenn eru enn að fjalla um. Munurinn er sá, aö fyrir röskum 18 árum, þegar Hvalfjarðarskýrsl- unni var skilað, þá höfðu menn ekki þær forsendur, sem fyrir hendi eru nú, til þess að mæla með því, að ráðizt yröi í gerð ganga eða brúar. Nefndin mælti með því, að bezta lausnin á þeim tíma væri að leggja betri og fullkomnari veg fyrir Hvalfjörð, en kanna þyrfti betur aðra þætti, svo sem nýja tækni f ferjurekstri og möguleika á flutn- ingum í lofti með þyrlu. Lands- menn njóta í dag starfs nefndar- innar, þar sem allt frá árinu 1972 var unniö ! samræmi við tillögur nefndarinnar samkvæmt vega- áætlun, en segja má, að um leið og tillögur nefndarinnar voru að mestu komnar til framkvæmda meö bundnu slitlagi fyrir Hvalfjörð, þá fóru menn með tilliti til nýrrar tækni og nýrra viðhorfa varðandi framkvæmdir og fjármögnun að huga enn á ný að því að komast yfir Hvalfjörðinn utanverðan. 3. Hvalfjar&arnefnd önnur Með bréfi í ágúst árið 1989 skipaði samgönguráðherra starfs- hóp til þess aö fjalla um hugmyndir um samgöngur undir/yfir utan- verðan Hvalfjörö. Starfshópur þessi var skipaður, eftir að nokkur opinber umræða hafði verið um þessi mál, en sú umræða fór ekki sízt af stað fyrir áhuga forsvars- manna Sementsverksmiðju ríkisins og íslenzka járnblendifélagsins hf. Starfshópurinn, sem skilaði skýrslu í janúar árið 1990, fjallaði m.a. um forsögu málsins, rannsóknir, gildi tengingar, skipulag fjármögnunar og framkvæmda svo og lagaatriði. Má segja, að skýrsla Hvalfjarðar- nefndar annarrar hafi mótað þann farveg, sem málið er í nú, en á vordögum árið 1990 voru sam- þykkt lög nr. 45/1990 um veg- tengingu um utanveröan Hvalfjörð, en í þeim lögum er gert ráö fyrir, að hlutafélag annist undirbúning, fjár- mögnun og framkvæmdir við veg- tengingu. Þar með var tekið mikil- vægt skref í þá átt að standa með öðrum hætti að vegaframkvæmd- um á íslandi en gert haföi verið áöur. 4. Önnur vinna viö undirbúning Þegar fjallaö er um forsögu þess, aö ný viðhorf veróa gildandi í fjármögnun og framkvæmdum vegagerðar á íslandi, þá verður ekki um þá sögu fjallað án þess að geta þáttar Vegagerðar ríkisins. 111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.